Bjórkjallarinn þar sem Hitler hóf feril sinn þarf að hýsa fund öfgaflokks Bjarki Ármannsson skrifar 12. maí 2016 11:35 Bjórkjallari í þýsku borginni München, sem helst er þekktur fyrir það að Adolf Hilter hóf þar sinn stjórnmálaferil, þarf að hýsa fund hægriöfgaflokksins Alternative für Deutschland, eða Val fyrir Þýskaland. Vísir/Getty
Bjórkjallari í þýsku borginni München, sem helst er þekktur fyrir það að Adolf Hilter hóf þar sinn stjórnmálaferil, þarf að hýsa fund hægriöfgaflokksins Alternative für Deutschland, eða Val fyrir Þýskaland. Dómstóll þar í borg komst að þessari niðurstöðu í dag og breska ríkisútvarpið greinir frá. Bjórkjallarinn Hofbräukeller hafði samþykkt að hýsa fundinn en reyndi að slíta því samkomulagi eftir að Val fyrir Þýskaland samþykkti það sem yfirlýsta stefnu að íslamstrú „tilheyri ekki Þýskalandi.“ Ricky Steinberg, sem rekið hefur Hofbräukeller í nærri tuttugu ár, segist hafa óttast mótmæli fyrir utan staðinn. Forsvarsmenn Vals fyrir Þýskaland hafa þó gefið í skyn að stærri stjórnmálaflokkar hafi þrýst á Steinberg að hætta við. Adolf Hitler flutti sína fyrstu ræðu á bjórkjallaranum árið 1919 og var rúmum áratug síðar orðinn kanslari Þýskalands. Söguleg tenging Hofbräukeller við Hitler fer ekki framhjá neinum Þjóðverja sem fylgst hefur með þessu máli, enda hefur Val fyrir Þýskaland boðað öfgahægrisinnuð viðhorf í ýmsum málum að undanförnu. Til að mynda hefur Frauke Petry, leiðtogi flokksins, sagt að þýsk lögregla ætti að fá að skjóta að flóttafólki til að koma í veg fyrir að það komist inn í landið með ólögmætum hætti. Í byrjun mánaðar samþykkti flokkurinn svo áðurnefnda stefnu í málum íslams, sem felur meðal í sér bann á bænakalli múslima. Flokkurinn mælist með um fimmtán prósenta fylgi í nýjustu könnunum.
Mest lesið Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Fleiri fréttir Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sjá meira