Eldarnir magnast enn Guðsteinn Bjarnason skrifar 9. maí 2016 07:00 Skógareldar geisa enn í Kanada
Eldarnir í Alberta í Kanada hafa haldið áfram að magnast dag frá degi. Síðan á föstudag hefur eldsvæðið þrefaldast að flatarmáli og búist er við því að ástandið eigi enn eftir að versna. Stjórnvöld í Alberta telja allar líkur á að glíman við eldana geti staðið yfir mánuðum saman, enda ekkert lát á þurrkatíðinni. Miklir hitar eru á þessum slóðum og verulegt hvassviðri gerir ástandið enn verra. Einhver úrkoma var í gær en dugði engan veginn til.Úrhellisrigningu þurfi. Eldarnir þöktu í gær nærri 3.000 ferkílómetra svæði en náðu á föstudaginn yfir þúsund ferkílómetra. Þykkur reykur hvílir yfir svæðinu og fólk er hvatt til að halda sig inni eða koma sér í burtu. Sérstaklega er ástandið erfitt fyrir fólk með öndunarfærasjúkdóma, sem varað er við því að fara út úr húsi. Eldarnir hafa eyðilagt meira en 1.600 byggingar í Fort McMurray og á annan tug bygginga í Anzac. 80 þúsund manns hafa forðað sér frá borginni. Nærri helmingurinn hefur leitað ásjár hjá Rauða krossinum og um fimm þúsund hafa fengið inni í samkomuhúsum meðan stjórnvöld leita að bráðabirgðahúsnæði. Rachel Notely, forsætisráðherra Albertafylkis, sagði í gær að öllum íbúum hafi verið forðað úr borginni. Lögreglumenn hafa leitað í borginni að fólki, sem kynni að leynast þar enn og tókst að bjarga nokkrum burt á lífi. Ekki er vitað til þess að eldarnir hafi kostað mannslíf. Hundruð slökkviliðsmanna hafa barist við eldana og við slökkvistarfið hefur verið notast við 88 slökkvibifreiðar, fimmtán þyrlur og tugi flugvéla, sem notaðar hafa verið til að varpa vatni niður á eldana. Tjónið hefur verið gróflega metið á nærri 10 milljarða kanadadala, eða um 950 milljarða króna.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 9. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Fleiri fréttir Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Sjá meira