Dóttir Paul Walker fékk milljarð í bætur frá ökumanni bílsins Birgir Olgeirsson skrifar 10. apríl 2016 14:38 Paul Walker
Dóttir bandaríska leikarans sáluga, Paul Walker, fékk 10 milljónir dollara í bætur, um 1,2 milljarða íslenskra króna, eftir að faðir hennar lést í bílslysi í desember árið 2013. Sátt náðist á milli hinnar sautján ára gömlu Meadow Walker og dánarbús Roger Rodas, vinar föður hennar en báðir fórust þeir í umræddu bílslysi þar sem Rodas var ökumaðurinn. Lögmaður dóttur Walkers, Jeff Milam, segir Rodas hafa borið að hluta til ábyrgð á slysinu og þess vegna náðist samkomulag um að Meadow fengi þessar bætur. Samkomulagið náðist árið 2014 en var ekki gert opinbert fyrr en í gær þegar bandaríska fréttastofan TMZ birti upplýsingar um það á vef sínum.Í yfirlýsingu sem sem Jeff Milam sendi á E! News kemur fram að þessar bætur sem dóttir Walkers fær séu ekki nema brot af því sem Walker hefði þénað til viðbótar á ferli sínum hefði hann lifað. Þegar Walker dó var hann við tökur á sjöundu myndinni í Fast and Furious-seríunni, Furious 7, sem er ein af tekjuhæstu myndum sögunnar. Milam áréttaði einnig að Meadow myndi halda máli sínu gegn bílaframleiðandanum Porsche til streitu en Milam segir ætlunina að sanna að Porsche-bifreiðin sem Walker var í hafi verið gölluð og það hafi leitt til dauða hans. Ekkja Rodas, Kristine Rodas, tapaði svipuðu máli fyrir dómi síðastliðinn mánudag en þar hélt hún því fram að maður hennar hefði látið lífið vegna nokkra öryggisþætti hefði vantað í Porsche Carrera GT-bifreiðina sem hann ók. Dómarinn í málinu taldi ekki nægar sannanir til að styðja þá ásökun. Lögmaður dóttur Walkers bendir á að Rodas lést samstundis í slysinu en Walker hafi enn verið á lífi þegar eldur kom upp í bílnum. Bílaframleiðandinn Porsche hefur neitað sök og segir bílnum hafa verið breytt af eigandanum og ekki haldið við.
Tengdar fréttir Kveðjustund Paul Walker á hvíta tjaldinu Kvikmyndin Furious 7 verður frumsýnd um helgina. Leikarinn Paul Walker lést í bílslysi þegar tökur á myndinni voru hálfnaðar. Handritinu var breytt og hlupu bræður hans í skarðið til þess að hægt væri að ljúka við myndina. 1. apríl 2015 11:30 Dóttir Paul Walker kærir Porsche vegna dauða föður síns Meadow Walker, dóttir leikarans Paul Walker, hefur ákveðið að lögsækja Porsche eftir að faðir hennar lést í bílslysi. 29. september 2015 10:13 Faðir Paul Walker lögsækir Porsche Hann segir bílinn ekki hafa búið yfir öryggisbúnaði sem hefði getað bjargað lífi Walker. 26. nóvember 2015 08:31 Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira
Kveðjustund Paul Walker á hvíta tjaldinu Kvikmyndin Furious 7 verður frumsýnd um helgina. Leikarinn Paul Walker lést í bílslysi þegar tökur á myndinni voru hálfnaðar. Handritinu var breytt og hlupu bræður hans í skarðið til þess að hægt væri að ljúka við myndina. 1. apríl 2015 11:30
Dóttir Paul Walker kærir Porsche vegna dauða föður síns Meadow Walker, dóttir leikarans Paul Walker, hefur ákveðið að lögsækja Porsche eftir að faðir hennar lést í bílslysi. 29. september 2015 10:13
Faðir Paul Walker lögsækir Porsche Hann segir bílinn ekki hafa búið yfir öryggisbúnaði sem hefði getað bjargað lífi Walker. 26. nóvember 2015 08:31