Fundu sex manns á lífi í húsarústum í Manta í Ekvador Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. apríl 2016 16:13 Björgunarmenn leita að fólki í húsarústum í Manta. vísir/epa
Sex manns var í dag bjargað lifandi úr húsarústum í borginni Manta í Ekvador, þremur dögum eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir norðvesturströnd landsins. Einn af þeim sem var bjargað sagði björgunarmönnum að fjórir til viðbótar væru fastir í rústunum. Skjálftinn, sem var af stærðinni, 7,8 átti upptök sín nálægt bænum Pedernales í Manabí-héraði en bærinn jafnaðist nánast við jörðu í skjálftanum. 413 manns hafa nú fundist látnir og eftir því sem tíminn líður minnka líkurnar á að finna fólk á lífi.Jafnan er talið að þegar 72 klukkutímar eru liðnir frá skjálfta þá séu afar litlar líkur á að finna einhverja á lífi, en á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma verða þrír sólarhringar liðnir frá skjálftanum í Ekvador. Ennþá er 231 saknað og þá slösuðust 2658 manns en þetta eru mestu náttúruhamfarir í landinu í meira en 40 ár. „Það er fólk fast í rústunum og af lyktinni að dæma er augljóst að það er látið,“ sagði Marco Borja, herforingi í ekvadoríska hernum, í samtali við Reuters en hann var þá staddur í strandbænum Canoa, skammt frá Manta. Bærinn varð mjög illa úti í skjálftanum og lýsti Rafael Correa, forseti Ekvador, Canoa sem draugabæ í samtali við fjölmiðla fyrr í dag. Sagði hann að 80 prósent af bænum hefði verið jafnaður við jörðu. Þá er jafnframt ljóst að eignatjón í landinu er gríðarlegt og uppbyggingin mun taka mörg ár. „Tjónið nemur þúsundum milljóna. Mér reiknast til að þetta séu um 3 milljarðar dala sem er 3 prósent af vergri landsframleiðslu okkar. Uppbyggingin mun því taka mörg ár og þetta verður löng og ströng barátta. Við megum hins vegar ekki gefast upp,“ sagði Correa.
Tengdar fréttir 350 látnir vegna jarðskjálftans í Ekvador Líklegt þykir að talan muni hækka enn fremur á næstu dögum. 18. apríl 2016 19:00 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira
350 látnir vegna jarðskjálftans í Ekvador Líklegt þykir að talan muni hækka enn fremur á næstu dögum. 18. apríl 2016 19:00