Innlent

Ofveiðum kolmunna eins og hinir

Svavar Hávarðsson skrifar
Mikið af kolmunna er landað austan lands, ekki síst í Neskaupstað.
Mikið af kolmunna er landað austan lands, ekki síst í Neskaupstað. Mynd/KSH
Aflaheimildir Íslands í kolmunna á árinu 2016 voru auknar í gær um 39 þúsund tonn með ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ástæðan fyrir aflaaukningunni er viðbragð íslenskra stjórnvalda við þeirri staðreynd að hin strandríkin hafa ákvarðað heildarafla sinn sem er umfram ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES). Ákvörðun Íslands tekur mið af þeirri staðreynd, segir í tilkynningu.

Leyfilegur heildarafli Íslands verður þar með 163.570 tonn sem þýðir að kvótinn er aukinn um 30 prósent.

Fyrri ákvörðun frá því í desember síðastliðnum um 126 þúsund tonna heildarafla Íslands byggði á þeim fyrirvara að ráðgjöf ICES væri fylgt af öllum þjóðunum og haldið væri óbreyttri hlutdeildarskiptingu samkvæmt eldri samningi strandríkjanna; Íslands, Evrópusambandsins, Noregs og Færeyja frá árinu 2006, sem auk þess gerir ráð fyrir ákveðnum hlut til Rússlands og Grænlands sem úthafsveiðiþjóða. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×