Innlent

„Þú verður að spyrja strákana í Framsókn að því“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vigdís Hauksdóttir í viðtali við Heimi Má Pétursson í hádeginu.
Vigdís Hauksdóttir í viðtali við Heimi Má Pétursson í hádeginu.
„Ég er orðin svo vön að ég er alveg hætt að taka það nærri mér,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar, um þá staðreynd að hún er ekki ráðherraefni flokksins. Lilja Alfreðsdóttir mun taka við embætti utanríkisráðherra á ríkisráðsfundi klukkan 15 í dag.

Þegar ljóst var að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stigi til hliðar úr embætti forsætisráðherra varð ljóst að fylla þyrfti eitt ráðherrasæti í nýrri ríkisstjórn. Vigdís var nefnd til sögunnar, líkt og árið 2013, en hlotnaðist ekki embættið.

Vigdís segir eftirsjá að Sigmundi Davíð.

„Já, ég dauðsé á eftir Sigmundi Davíð úr forsætisráðherraembættinu því þjóðin er búin að fara í gegnum stórkostlega tíma

Hann eigi framtíð fyrir sér, hvort sem er í stjórnmálum eða annars staðar.

„Hann getur valið það sem hann vill vera, hann hefur það mikla yfirsýn og er það klár að hann á framtíð fyrir sér í stjórnmálum eða hvar sem hann kýs að drepa niður fæti í framtíðinni.“

Aðspurð hvort hún telji að Sigmundur Davíð muni ekki stjórna málunum áfram á bak við tjöldin segir:

„Þú verður að spyrja strákana sem stjórna framsókn að því hvernig þeir ætla að gera það,“ segir Vigdís sem er formaður fjárlaganefndar.

„Ég er kannski bara í aftursætinu sem formaður fjárlaganefndar, að ég hafi verið það síðan í kosningunum 2013,“ segir Vigdís og brosir.

Hún vonast til þess að nú skapist ró í samfélaginu og hugnast það best að ríkisstjórnin komist að samkomulagi við stjórnarandstöðuna um tíu til fimmtán forgangsmál til að koma í gegnum þingið fyrir kosningar sem boðaðar hafa verið síðar á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×