Frábær byrjun strákanna í Póllandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. apríl 2016 17:37 Ómar Ingi átti frábæran leik gegn Póllandi. vísir/vilhelm
Íslenska U-20 ára landsliðið í handbolta vann öruggan sigur á Póllandi, 26-31, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM í dag. Leikið var í Kielce í Póllandi. Íslenska liðið var miklu sterkari aðilinn allt frá upphafsflautinu. Íslensku strákarnir komust í 0-3 en þá tóku Pólverjar við sér og minnkuðu muninn í 4-5. Ísland herti þá tökin, skoraði átta mörk gegn þremur og komst sex mörkum yfir, 7-13. Staðan í hálfleik var 11-16. Íslensku strákarnir hófu seinni hálfleikinn af miklum krafti og gerðu þá í raun út um leikinn. 5-1 vörn liðsins var öflug og fyrir vikið fékk Ísland fullt af hraðaupphlaupum. Um miðjan seinni hálfleik var munurinn orðinn 12 mörk, 14-26, og úrslitin svo gott sem ráðin. Minni spámenn fengu að spreyta sig í íslenska liðinu á lokakaflanum þar sem Pólverjar náðu að laga stöðuna. Það breytti þó engu um niðurstöðuna. Lokatölur 26-31, Íslandi í vil. Óðinn Þór Ríkharðsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu sex mörk hvor fyrir íslenska liðið en sá síðarnefndi átti auk þess fjölda stoðsendinga á félaga sína. Egill Magnússon kom næstur með fimm mörk og Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur. Ísland er með tvö stig í riðlinum, líkt og Ítalía sem vann 30-25 sigur á Búlgaríu fyrr í dag. Íslensku strákarnir mæta Búlgörum á morgun og ljúka svo leik gegn Ítölum á sunnudaginn. Tvö efstu liðin í riðlinum komast í lokakeppnina í Danmörku í sumar.Mörk Íslands: Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Ómar Ingi Magnússon 6, Egill Magnússon 5, Elvar Örn Jónsson 4, Sturla Magnússon 3, Birkir Benediktsson 2, Hákon Daði Styrmisson 2, Sveinn Jóhannsson 2, Leonharð Harðarson 1.
Handbolti Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira