Messi með tímamótamark í sigri Argentínu | Alves bjargaði stigi fyrir Brassa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2016 07:53 Messi fagnar 50. marki sínu fyrir Argentínu. vísir/getty
Lionel Messi skoraði seinna mark Argentínu sem vann 2-0 sigur á Bólivíu í undankeppni HM 2018 í gær. Þetta var 50. mark Messi fyrir argentínska landsliðið en hann vantar nú aðeins sex mörk til að jafna markamet Gabriels Batistuta. Varnarmaðurinn Gabriel Mercado kom Argentínumönnum yfir á 20. mínútu og 10 mínútum síðar tvöfaldaði Messi forskotið með marki úr vítaspyrnu og þar við sat. Argentína hefur nú unnið þrjá leiki í röð og er í 3. sæti Suður-Ameríkuriðilsins. Dani Alves bjargaði stigi fyrir Brasilíu gegn Paragvæ á útivelli. Paragvæar komust í 2-0 í byrjun seinni hálfleiks og þannig var staðan allt fram á 79. mínútu þegar hinn 35 ára gamli Ricardo Oliviera minnkaði muninn í 2-1. Það var svo Alves sem jafnaði metin á annarri mínútu í uppbótartíma. Brassar hafa aðeins unnið tvo leiki í undankeppninni og eru í 6. sæti riðilsins með níu stig. Suður-Ameríkumeistarar Chile rúlluðu yfir Venesúela á útivelli, 1-4. Mauricio Pinilla og Arturo Vidal skoruðu tvö mörk hvor fyrir Chile sem er í 4. sæti riðilsins með 10 stig. Þá tryggði Edinson Cavani Úrúgvæ 1-0 sigur á Perú og Ekvador tapaði sínum fyrsta leik í undankeppninni gegn Kólumbíu, 3-1. Úrúgvæ og Ekvador eru jöfn að stigum á toppi riðilsins en liðin hafa bæði krækt í 13 stig í sex leikjum.
Fótbolti Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Fleiri fréttir KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Sjá meira