Nauðgaði 15 ára stúlku á 17. júní Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. mars 2016 12:15 Nauðgunin varð að loknum hátíðarhöldum í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 21 árs karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga stúlku í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu 17. júní fyrir tæpum þremur árum. Maðurinn, Sigurvin Bachmann, var átján ára þegar brotið var framið en stúlkan fimmtán ára. Brotið var framið að kvöldi 17. júní að lokinni skemmtun í miðbænum. Þangað fór stúlkan ásamt vinkonu sinni með strætisvagni. Hún greindi frá því að maðurinn hefði farið með hana inn á baðherbergi og nauðgað henni. Hún hefði ekki getað brugðist við sökum ölvunar. Stúlkan hringdi í foreldra sína eftir atburðinn og sótti faðir hennar hana. Hún greindi þó ekki frá nauðguninni fyrr en í viðtali hjá sálfræðingi Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans þremur dögum síðar. Hafði hún verið hjá viðkomandi sálfræðingi í ár fyrir nauðgunina og verið í sjálfsvígshugleiðingum bæði fyrir og eftir.Breytti framburði í tvígang Dómurinn mat framburð stúlkunnar trúverðugan en maðurinn breytti framburði sínum í tvígang, frá því í tveimur skýrslutökum hjá lögreglu og svo fyrir dómi. „Það er niðurstaða dómsins að hafna framburði ákærða um að brotaþoli hafi viljað hafa við hann samfarir. Þótt framburður hans fyrir dómi sé ekki ótrúverðugur verður við mat á honum að hafa í huga að það er þriðja útgáfa hans af því sem gerðist milli hans og brotaþola nefndan dag.“ Tvö vitni á staðnum gátu litlar upplýsingar gefið en annað var 13 ára og hitt undir áhrifum áfengis. Hvorugt gat þó staðfest að þau hefðu verið að kyssast í sófanum í aðdraganda þess að þau fóru inn á baðherbergi eins og maðurinn hélt fram. Sigurvin þarf að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í miskabætur. Hann hefur ekki áður hlotið dóm. Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir ÖBÍ greiðir málskostnaðartryggingu Jakubs Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira