Innlent

Hæstiréttur staðfestir 18 mánaða dóm

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Bíllinn stórskemmdist en slysið varð við Sörlatorg í Hafnarfirði þar sem Reykjanesbraut beygir til norðurs.
Bíllinn stórskemmdist en slysið varð við Sörlatorg í Hafnarfirði þar sem Reykjanesbraut beygir til norðurs. Visir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag 18 mánaða dóm yfir Draupni Gestssyni sem féll í Héraðsdómi í febrúar í fyrra. Draupnir þarf að sitja 3 mánuði í fangelsi en 15 mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir til 3 ára. Þeir falla niður standist Draupnir skilorðið. Einnig var hann sviptur ökuréttindum í þrjú ár.

Sannað þótti að Draupnir hefði ekið bifreið sinni á um 160 kílómetra hraða undir áhrifum áfengis þegar hann missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að bíllinn kastaðist rúma 30 metra út af veginum. Tveir sem í bílnum voru slösuðust alvarlega. Honum var gert að greiða tvo þriðju sakarkostnaðar.

Farþegar bifreiðarinnar hafa höfðað einkamál gegn Draupni en annar þeirra er bundinn við hjólastól. Hvorugur þeirra segist hafa vitað til þess að Draupnir hafi verið undir áhrifum áfengis.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×