Ofur-Baldur ber helmingsábyrgð á móti Landsbjörg Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. mars 2016 23:21 Baldur slasaðist illa á gamlárskvöld 2012 er hann fékk skoteld í höfuðið við að sprengja flugeldatertu frá Landsbjörg. vísir/pjetur/daníel
Hæstiréttur dæmdi í dag Slysavarnafélagið Landsbjörg skaðabótaskylt að hluta gagnvart Baldri Sigurðssyni tónlistarmanni sem slasaðist illa á gamlárskvöld 2012 er hann fékk skoteld í höfuðið við að sprengja flugeldatertu.Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt slysavarnafélagið til að bera 2/3 hluta líkamstjóns Baldurs á móti honum sjálfum en samkvæmt dómi Hæstaréttar bera aðilar málsins tjónið til helminga. Baldur, eða Ofur-Baldur eins og hann er gjarnan kallaður, sagði sögu sína í sérstökum fréttatíma Stöðvar tvö árið 2013. Hann sagði það þar mildi að hann hafi notast við vélstjóragleraugu sín umrætt kvöld en höfuðkúpa hans brotnaði samt sem áður á þremur stöðum í slysinu og sjón hans tapaðist. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að allar leiðbeiningar á skottertunni hefðu samrýmst kröfum sem gerðar væru til leiðbeininga samkvæmt reglugerð um skotelda, fyrir utan það að ekki voru leiðbeiningar um að öryggisfjarlægð væri 25 metrar. Á þeim galla tertunnar bæri Landsbjörg ábyrgð. Hins vegar verður það ráðið af framburði vitna í málinu að Baldur hafi ekki farið eftir þeim leiðbeiningum sem voru á tertunni og hann kvaðst hafa lesið áður en hann kveikti í. Í dómi Hæstaréttar segir að leiðbeiningarnar hefðu átt að gefa honum tilefni til ríkrar aðgæslu, meðal annars að víkja vel frá tertunni, en þess í stað hafi hann staðið yfir henni og fært hana til eftir að hann kveikt í. Með því sýndi hann af sér stórkostlegt gáleysi að mati réttarins. Bótaábyrgð Landsbjargar var því viðurkennd til helminga við bótaábyrgð Baldurs sjálfs. Dóm Hæstaréttar má sjá í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Landsbjörg þarf að greiða Ofur-Baldri: Sala tertu ársins 2012 hefði átt að vera bönnuð Baldur Sigurðarson tónlistamaður slasaðist illa á gamlárskvöld 2012 er hann fékk skoteld í höfuðið við að sprengja flugeldatertu frá Landsbjörg. 10. mars 2015 22:13 Fékk flugeld í andlit í fyrra og skaddaðist varanlega "Það er álíka afl í þessu og í haglabyssu og hún skaut mig á fjögurra metra færi beint í hausinn," segir Baldur Sigurðarson sem fyrir ári síðan fékk skoteld í höfuðið með þeim afleiðingum að höfuðkúpa hans brotnaði á þremur stöðum og sjón hans tapaðist. 31. desember 2013 12:40 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Sjá meira
Landsbjörg þarf að greiða Ofur-Baldri: Sala tertu ársins 2012 hefði átt að vera bönnuð Baldur Sigurðarson tónlistamaður slasaðist illa á gamlárskvöld 2012 er hann fékk skoteld í höfuðið við að sprengja flugeldatertu frá Landsbjörg. 10. mars 2015 22:13
Fékk flugeld í andlit í fyrra og skaddaðist varanlega "Það er álíka afl í þessu og í haglabyssu og hún skaut mig á fjögurra metra færi beint í hausinn," segir Baldur Sigurðarson sem fyrir ári síðan fékk skoteld í höfuðið með þeim afleiðingum að höfuðkúpa hans brotnaði á þremur stöðum og sjón hans tapaðist. 31. desember 2013 12:40