Kiel vann upp munninn og mætir Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. mars 2016 19:27 Niklas Landin var frábær í kvöld. Vísir/Getty
Kiel tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 36-29. Þar með náði Kiel að vinna upp fjögurra marka tap í fyrri leiknum sem fór fram í Ungverjalandi á sunnudag. Kiel mætir næst Evrópumeisturum Barcelona í 8-liða úrslitunum en Guðjón Valur Sigurðsson, sem var áður á mála hjá Kiel, leikur með Börsungum. Leikurinn var æsispennandi en það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins að Kiel náði að sigla fram úr. Var það ekki síst markverðinum Niklas Landin að þakka en hann varði þrjú vítaskot á síðustu mínútum leiksins. Eftir jafnan fyrri hálfleik náði Kiel fjögurra marka forystu, 18-14, áður en gengið var til búningsklefa. Þar með var staðan í rimmunni jöfn. Í síðari hálfleik var Kiel með undirtökin en ungverska liðið aldrei langt undan. Kiel náði hins vegar að spila betri vörn en í leik liðanna á sunnudag og munaði einnig gríðarlega miklu um frammistöðu Landin í markinu, sem var mun betri en í fyrri leiknum. Marko Vujin átti stórleik fyrir Kiel og skoraði níu mörk. Niclas Ekberg kom næstur með sjö mörk en Christian Dissinger, sem hefur verið frá vegna meiðsla, kom sterkur inn af bekknum og skoraði fimm mörk. Dean Bombac var í aðalhlutverki hjá Pick Szeged og skoraði sjö mörk, rétt eins og gamla kempan Jonas Källman en hann skoraði reyndar fyrstu fjögur mörk Ungverjanna í leiknum. Þetta er fyrsta rimman sem klárast í 16-liða úrslitunum en keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram nú um helgina. Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson dæmdu leikinn og komust vel frá sínu.
Handbolti Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira