Gáleysi líklegasta skýringin í Viola Beach-málinu Bjarki Ármannsson skrifar 11. mars 2016 07:35 Hljómsveitarmeðlimirnir fjórir og umboðsmaðurinn Craig Tarry létu allir lífið þegar bifreiðin fór fram af vindubrú í Svíþjóð þann 13. febrúar síðastliðinn. Vísir/Facebook
Rannsakendur bílslyssins sem grandaði bresku hljómsveitinni Viola Beach og umboðsmanni hennar segja að gáleysi ökumanns sé sennilegasta skýringin á því hvers vegna bifreið hljómsveitarinnar var ekið fram af brú í síðasta mánuði. Í gær var haft eftir rannsakendum að útlit væri fyrir að bifreiðinni hefði viljandi verið ekið fram af brúnni. Hljómsveitarmeðlimirnir fjórir og umboðsmaðurinn Craig Tarry létu allir lífið þegar bifreiðin fór fram af vindubrú í Svíþjóð þann 13. febrúar síðastliðinn. Þeir voru á leið á hótelið sitt eftir sína fyrstu tónleika á erlendri grundu. Aftonbladet birti í gær myndband unnið úr öryggismyndavélum á vettvangi en svo virðist sem Nissan Qashqai bifreið sveitarinnar sé ekið upp að bílaröð sem hafði myndast þegar vindubrúin var reist upp vegna skipaumferðar. Á myndbandinu er bílnum bakkað og þvínæst ekið framhjá bílaröðinni, í gegnum vegatálma og fram af brúninni.„Mín kenning er sú að ökumaðurinn hafi ekki verið að fylgjast nægilega vel með, mögulega var hann að tala í farsíma eða sneri að hinum farþegum bifreiðarinnar,“ segir Lars Berglund, einn rannsakenda í málinu, við Länstidingen Södertälje. Aftonbladet hafði eftir Berglund í gær að það hvernig bílinn ók framhjá bílaröðinni og í gegnum vegatálmana gæti bent til þess að ökumaðurinn hefði ætlað sér að keyra fram af. Sænska lögreglan hefur þegar greint frá því að ökumaðurinn hafi ekki verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar hann ók fram af brúnni, en lögregla hefur ekki viljað gefa upp hver þeirra fimm sem fórust var við stýrið.
Tengdar fréttir Bresk hljómsveit fórst í bílslysi í Svíþjóð Höfðu spilað á sænskri tónlistarhátíð síðastliðinn föstudag. 14. febrúar 2016 10:50 Bíl Viola Beach ekið viljandi fram af brúnni Tónlistarmennirnir fjórir og umboðsmaður þeirra fórust. Sænska lögreglan rannsakar málið. 10. mars 2016 16:27 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira
Bresk hljómsveit fórst í bílslysi í Svíþjóð Höfðu spilað á sænskri tónlistarhátíð síðastliðinn föstudag. 14. febrúar 2016 10:50
Bíl Viola Beach ekið viljandi fram af brúnni Tónlistarmennirnir fjórir og umboðsmaður þeirra fórust. Sænska lögreglan rannsakar málið. 10. mars 2016 16:27