Innlent

Starfsmenn hjá Kópavogsbæ telja sig hlunnfarna um laun

Gissur Sigurðsson skrifar
Ármann Kr. Ólafsson.
Ármann Kr. Ólafsson. Vísir/Vilhelm
Hópur sviðs- og deildarstjóra hjá Kópavogsbæ telur sig hafa verið hlunnfarinn um laun upp á hátt í hundrað milljónir króna síðan árið 2006, að kjararáð úrskurðaði um laun þeirra. Meðal starfsmannanna hafa vaknað þær spurningar hvort eða hvernig þetta verði leilðrétt.

Til dæmis hvort ekki verður farið lengra aftur í tímann en fjögur ár, og hvort leiðréttingin á aðeins að ná til þeirra, sem enn eru við störf en ekki þeirra sem nýlega eru hættir vegna aldurs, eða hafa skipt um vinnu.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri segir í viðtali við fréttastofu að málið sé nú statt þannig að hann hafi komið á fót þriggja manna starfshópi, til að fara yfir málið og er einn skipaður af starfsmönnunum, annar af bæjarstjórn og sá þriðji verður oddamaður. Að starfi loknu verði væntanlega fundin heppileg leið til leiðréttinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×