Rangstöðumark Diego Costa réði úrslitum á Carrow Road | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2016 21:30 Diego Costa fagnar marki með Kenedy vísir/getty
Chelsea er komið upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Norwich City í kvöld. Chelsea komst upp fyrir Stoke og Liverpool með þessum sigri og hefur enn ekki tapað deildarleik undir stjórn Guus Hiddink. Markið sem skildi á milli liðanna átti þó aldrei að standa því Diego Costa var rangstæður þegar hann kom Cheslea í 2-0 í uppbótartíma fyrri hálfleiksins. Diego Costa hefur raðað inn mörkum síðan að Guus Hiddink tók við Chelsea-liðinu af Jose Mourinho. Norwich átti fína spretti í seinni hálfleiknum og fékk tækifæri til að jafna metin. Chelsea fékk draumabyrjun á leiknum þegar Kenedy kom liðinu í 1-0 eftir aðeins 39 sekúndur en hann skoraði þá með hnitmiðuðu langskoti eftir undirbúning Eden Hazard. Þetta var fyrsta mark Kenedy í ensku úrvalsdeildinni og jafnframt fljótasta markið í ensku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu. Það var nánast heill hálfleikur á milli marka Chelsea í fyrri hálfleiknum því Diego Costa kom liðinu í 2-0 í uppbótartíma hálfleiksins. Diego Costa hafði reyndar heppnina með sér því það fór framhjá aðstoðardómara leiksins að Diego Costa var rangstæður þegar hann fékk boltann. Diego Costa lét það þó ekki trufla sig og afgreiddi boltann laglega í markið og skoraði sitt tíunda mark í síðustu fjórtán leikjum. Nathan Redmond minnkaði muninn í 2-1 á 68. mínútu og leikmenn Norwich reyndu að ná jöfnunarmarki í lokin án árangurs.Kenedy kemur Chelsea í 1-0 Diego Costa kemur Chelsea í 2-0 Nathan Redmond minnkar muninn fyrir Norwich
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Sjá meira