Lífið

Sýnir sig í fyrsta sinn eftir áfallið

Kardashian fjölskyldan stendur þétt á bak við Lamar Odom.
Kardashian fjölskyldan stendur þétt á bak við Lamar Odom. mynd/getty
Ofurparið fyrrverandi Khloe Kardashian og Lamar Odom nutu lífsins saman í New York á dögunum. Þau voru þó ekki ein því fjölskylda Khloe var með þeim og sáust þau meðal annars skemmta sér á tískusýningu í Madison Square Garden, þar sem Kanye West frumsýndi þriðju fatalínu Yeezy.

Þetta er í fyrsta sinn sem NBA-leikmaðurinn fyrrverandi lætur sjá sig á frægramannasamkomu eftir að hann fannst meðvitundarlaus á vændishúsi í október, eftir að hafa tekið of stóran skammt af eiturlyfjum.

Það fór vel á með Lamar Odom og Khloe Kardashian í New York á dögunum.mynd/getty
Khloe og Odom, sem giftu sig árið 2009, voru hætt saman og var Khloe byrjuð með öðrum NBA-leikmanni, James Harden, þegar áfallið dundi yfir í október en þau eru hætt saman. Eftir að Odom var lagður inn á spítala var skilnaðarferli þeirra sett á ís og hefur Khloe undanfarna mánuði aðstoðað Odom í bataferlinu.

Nú spyr fólk sig hvort þau séu byrjuð saman á ný en samkvæmt heimildarmanni bandaríska slúðurfrétta­miðilsins E! Online, er Khloe efst í huga að hjálpa Odom að ná bata. Heimildarmaðurinn segir að hvort þau byrji saman á ný muni koma í ljós þegar Odom nái heilsunni aftur en hann sagði jafnframt að Khloe hefði aldrei hætt að elska Odom.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×