Erlent

Umsvif Kínverja vekja hörð viðbrögð

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Kínversk mannvirki á eynni Yongxing.
Kínversk mannvirki á eynni Yongxing. vísir/epa
Kínverjar hafa sett upp loftvarnarbúnað með flugskeytaskotstöð á lítilli eyju í Suður-Kínahafi,

Sjálfir segja Kínverjar ekkert athugavert við þessar framkvæmdir. Þær séu allar í góðu samræmi við lög.

Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, sagði á blaðamannafundi í Peking að Kínverjar hefðu staðið í margvíslegum framkvæmdum á eyjum í Suður-Kínahafi til að þjónusta almenning, þar á meðal reist vita og veðurstöðvar. Að auki hafi þeir komið sér upp takmarkaðri en nauðsynlegri varnaraðstöðu, sem sé í fullu samræmi við sjálfsvarnarrétt Kína samkvæmt alþjóðalögum.

„Það ætti ekki að vera nein spurning um það,“ sagði Wang.

Tsai Ing-wen, nýkjörinn forseti Taívans, segir spennuna vera vaxandi en hvetur samt til stillingar.

Það var bandaríska fréttastöðin Fox News, sem skýrði fyrst frá því á þriðjudag að í síðustu viku hefðu Kínverjar flutt öflugan flugskeytabúnað til eyjunnar Yongxing, og birti myndir af búnaðinum.

„Við teljum að þetta sé tilraun af hálfu ákveðinna vestrænna fjölmiðla til þess að búa til fréttir,“ sagði Wang, en neitaði því ekki að búnaðinum hefði verið komið þarna upp.

Eyjan Yongxing er partur af Paracel-eyjaklasanum í Suður-Kyrrahafi. Mikill ágreiningur er um yfirráðarétt yfir þessu hafsvæði. Kínverjar gera tilkall til stærsta hluta hafsins en Taívan, Malasía, Víetnam og Filippseyjar gera einnig tilkall til hluta þess.

Þessi tiltekna eyja, sem einnig er nefnd Woody-eyja og Phu Lam-eyja, hefur verið undir kínverskum yfirráðum frá árinu 1974. Bæði Taívan og Víetnam gera tilkall til hennar.

Aukin umsvif Kínverja á eyjunum hafa vakið mikla tortryggni og hörð viðbrögð nágrannalandanna, sem saka Kínverja um yfirgang og hótanir. Meðal annars hafa Kínverjar byggt upp litlar eyjar til að stækka þær og tryggja að þær verði frekar marktækar, þegar skorið er úr um yfirráð samkvæmt alþjóðasáttmálum.

Kínverjar hafa sjálfir sakað Bandaríkin um ólöglegar skipaferðir um hafsvæðið, enda njóti tilkall Kína til þess ekki alþjóðlegrar viðurkenningar.

„Bandaríkin munu halda áfram að fljúga, sigla og athafna sig hvar sem alþjóðalög leyfa,“ sagði Barack Obama forseti nú í vikunni. Hann sagði Bandaríkin sömuleiðis styðja rétt annarra þjóða til slíks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×