Cameron fær neyðarhemil frá ESB Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. febrúar 2016 07:00 Donald Tusk og David Cameron á sunnudaginn var fyrir utan bústað forsætisráðherrans að Downing-stræti 10 í London. vísir/EPA
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, kynnti í gær viðbrögð við kröfum Breta, sem vilja ná fram breytingum á Evrópusambandinu. Tusk heimsótti á sunnudaginn David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sem hefur lofað að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi þegar búið verður að semja upp á nýtt við Evrópusambandið. Bretar geti þá kosið um það hvort segja eigi upp aðildarsamningnum eða fallast á breyttan samning. Tusk býður Cameron meðal annars upp á „neyðarhemil” fyrir Bretland, sem þýddi að Bretland getur takmarkað atvinnutengdar bótagreiðslur til ríkisborgara annarra ESB-landa, sem búsettir eru í Bretlandi. Takmarkanirnar mega gilda í fjögur ár. Cameron hafði farið fram á meira, nefnilega að mega fella slíkar bótagreiðslur alveg niður í fjögur ár. Tusk segist hafa gengið „verulega langt” til að koma til móts við óskir Camerons. Hins vegar gæti hann ekki gengið lengra en meginreglur Evrópusambandsins leyfa. „Þetta hefur verið erfitt ferli og enn eiga erfiðar samningaviðræður eftir að fara fram,” sagði Tusk í bréfi til leiðtoga Evrópusambandsríkjanna, þar sem hann kynnti tillögurnar. Margt er óljóst um útfærslur á tilboði Tusks og Cameron segir að vinna þurfi áfram í þessu fyrir leiðtogafundinn 18. og 19. febrúar næstkomandi, þar sem leiðtogar Evrópusambandsríkjanna taka þessi mál til skoðunar. Breskir andstæðingar Evrópusambandsins segja þarna ekki gengið nærri nógu langt.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira