Loðnan verði rannsökuð frekar Svavar Hávarðsson skrifar 29. janúar 2016 07:00 Á síðustu vertíð veiddi íslenski flotinn um fjórfalt meira en ráðgjöf Hafró hljóðar upp á fyrir komandi vertíð. Vísir/Óskar
Í ljósi árvissrar óvissu um ástand loðnustofnsins og útlit fyrir lélega vertíð með tilheyrandi tekjuhruni fyrir sjávarbyggðir og hið opinbera, er sett stórt spurningarmerki við að hafrannsóknaskipin liggja bundin við bryggju. Verðmæti hverra 100 þúsund tonna af loðnu eru metin á um 12 milljarða króna. Þetta gerir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, að umtalsefni á heimasíðu fyrirtækisins. Þar bendir Gunnþór á þá staðreynd að loðnan drepst að hrygningu lokinni og því gríðarlega mikilvægt, sé horft til fjárhagslegra hagsmuna útgerðar og samfélagsins alls, að nýting stofnsins sé grundvölluð á bestu fáanlegu rannsóknargögnum sem völ er á. Á þetta við um loðnustofninn sjálfan, afrán sístækkandi hvalastofna og áhrif á aðra nytjastofna. Löngu er ljóst, segir Gunnþór, að loðnan er ólíkindatól og erfitt að ná utan um stofninn í mælingum. „Þannig hafa komið ár þar sem búið er að leita og leita að loðnu án mikils árangurs en síðan hefur hún skyndilega birst í miklu magni einhvers staðar við landið án þess að menn hafi áttað sig á hvernig hún hafi gengið. Það er því grundvallaratriði að leggja áherslu á að rannsaka loðnuna sem best því það eru svo gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir fyrirtækin, loðnubæina, starfsfólk og ríkissjóð,“ skrifar Gunnþór en minnir á gott samstarf Hafrannsóknastofnunar og útgerðanna um rannsóknir og spyr hvort ekki megi útfæra það samstarf frekar og nýta tækjabúnað fiskiskipanna til upplýsingaöflunar. Slíkt samstarf þyrfti jafnframt ekki að vera bundið við stofnmælingar á loðnu.Gunnþór IngvasonÍ þessu samhengi reifar Gunnþór hagsmunina sem eru undir. Áætluð vinnsluverðmæti úr 100 þúsund tonnum af loðnu eru 11,6 milljarðar króna. Þrettán fyrirtæki í tíu sveitarfélögum koma að veiðum og vinnslu loðnunnar. Launagreiðslur í tengslum við veiðar og vinnslu á 100 þúsund tonnum af loðnu áætlar Gunnþór að nemi um 2,8 milljörðum króna. Á sautján skipum sem koma að veiðunum má reikna með að séu 260 sjómenn í það minnsta og hafa þeir lifibrauð sitt af veiðunum. „Í landi má reikna með að starfi um 600 manns við loðnuvinnsluna. Hafa tekjur á loðnuvertíð jafnan vegið þungt í árstekjum sjómanna á loðnuskipunum og starfsmanna þeirra fyrirtækja sem annast vinnsluna. Áætla má að skatttekjur ríkisins af 100 þúsund tonnum af loðnu nemi tæplega 2,8 milljörðum króna.“ Gunnþór segir í viðtali við Fréttablaðið að útreikningar sínir séu varleg áætlun. Hann bendir á að nokkur sveitarfélög, sem mest eiga undir veiðum og vinnslu, séu að tapa stórri hlutdeild af sinni veltu sem kemur niður á fjárhagsstöðu heimilanna, jafnt sem verslun og þjónustu.
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira