Telja einkaréttinn kvöð Snærós Sindradóttir skrifar 16. janúar 2016 07:00 Íslandspóstur hefur lengi boðið út akstur og dreifingu til ýmissa staða utan höfuðborgarsvæðisins. Nú stendur yfir útboð á akstri til Ísafjarðar. Fréttablaðið/Arnþór
Afnám einkaréttar Íslandspósts að fullu mun væntanlega hafa þau áhrif að fyrirtækið geti ákveðið hvar það sinnir dreifingarþjónustu. Þetta er mat Ingimundar Sigurpálssonar, forstjóra póstsins.Ingimundur SigurpálssonInnanríkisráðuneytið undirbýr nú frumvarp um afnám einkaréttar Íslandspósts á póstdreifingu bréfa undir 50 grömmum. Íslandspóstur hefur lengi kallað eftir afnáminu og telur einkaréttinn ekki þjóna hagsmunum fyrirtækisins. „Það eru ýmsar takmarkanir sem einkarétturinn setur á okkar rekstur sem eru mjög íþyngjandi í því rekstrarumhverfi sem pósturinn er í,“ segir Ingimundur. „Stóra spurningin sem maður bíður spenntur eftir að fá svar við er hvernig ríkið hyggst greiða fyrir þá þjónustu sem lögin gera ráð fyrir.“ Í lögum um póstþjónustu er meðal annars gert ráð fyrir að virk póstþjónusta sé tryggð um allt land og að allir landsmenn hafi aðgang að ákveðnum þáttum póstþjónustu. Á síðastliðnum níu mánuðum hefur verð á þjónustu póstsins, sem heyrir undir einkaréttarhlutann, hækkað um allt að 26,4 prósent. Því munaði 30 krónum á sendingarkostnaði á hverju jólakorti milli 2014 og 2015. Ingimundur segir að hækkunin stafi af almennri hækkun á kostnaði, fækkun bréfa og meiri launakostnaði. „Á móti stendur gjaldamegin niðurnjörvað dreifikerfi sem stækkar með fjölgun íbúða og þar með póstlúga. Stóra málið er að kostnaðurinn við dreifingu einkaréttarins hefur ekki staðið undir sér síðustu ár. Hvað þá að hún dugi til að standa undir kostnaði við dreifingu á óarðbærum stöðum sem enginn vill sinna.“Ólöf Nordal innanríkisráðherraIngimundur segir að mörgu að hyggja við afnám einkaréttarins. „Þá gengur ekki að markaðsráðandi aðili, sem Íslandspóstur er í dreifingu bréfa, sé að undirverðleggja þjónustuna. Við þurfum að passa upp á það að verðskráin fyrir einkaréttinn skili meiri tekjum en kostnaður er vegna einkaréttarins. Annars væri það hugsanlega brot á samkeppnislögum varðandi undirverðlagningu.“ Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir ekki eðlilegt að opinbert fyrirtæki hafi einkarétt á slíkri þjónustu. Hún telur að bjóða þurfi upp á aukna samkeppni. „Ríkið hefur hins vegar ákveðnu hlutverki að gegna við að tryggja lágmarkspóstþjónustu og því þarf að búa þannig um hnúta að því verkefni verði áfram sinnt í samræmi við þarfir og eftirspurn eftir þjónustu,“ segir Ólöf.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira