Fundu fíkniefni í sölupakkningum við húsleit Birgir Olgeirsson skrifar 17. janúar 2016 09:53 Lögreglan á Suðurnesjum hafði í nógu að snúast í liðinni viku. Vísir/Hari
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á þrítugsaldri í vikunni sem reyndist vera undir áhrifum amfetamíns, metamfetamíns og kannabisefna við aksturinn, auk þess sem hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þá var bifreiðin sem hann ók ótryggð og óskoðuð. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni framvísaði maðurinn amfetamíni sem var í bifreiðinni, auk þess sem lögreglumenn fundu útdraganlega kylfu í hólfi í henni. Skráningarnúmerin höfðu verið fjarlægð af bifreiðinni. Tveir ökumenn til viðbótar, sem lögreglan hafði afskipti af reyndust einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Í húsleit á dvalarstað annars þeirra fundust meint fíkniefni í sölupakkningum, að hluta til meint MDMA. Einnig munir sem bentu til dreifingar og sölu fíkniefna og fjármunir sem voru haldlagðir. Þjófnaður á dekkjum úr gámi var tilkynntur til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Um var að ræða átta nýleg, negld vetrardekk og var annar gangurinn á álfelgum. Gámnum hafði verið lokað með borða og strekkjara sem læstur var með lás. Það dugði ekki til því sá eða þeir sem þarna voru að verki skáru á borðann og komust þannig inn. Málið er í rannsókn. Þá var kærður stuldur á greiðslukorti. Slóð þess var rakin þar sem það hafði verið notað í verslunum og hafði verið verslað fyrir tæplega 30 þúsund krónur. Vitað er hver þarna var að verki. Loks hafði einhver fingralangur tekið gaskút sem var fyrir utan íbúðarhúsnæði í umdæminu.
Mest lesið Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Fleiri fréttir Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Sjá meira