Innlent

Lögreglan leitar að Kristínu Júlíönu

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristín Júlíana hefur ekki skilað sér heim að loknum grunnskóla í Sandgerði í gær og ekki vitað um ferðir hennar eftir það.
Kristín Júlíana hefur ekki skilað sér heim að loknum grunnskóla í Sandgerði í gær og ekki vitað um ferðir hennar eftir það. Vísir/Aðsend
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Kristínu Júlíönu Baldursdóttur, 13 ára. Kristín Júlíana hefur ekki skilað sér heim að loknum grunnskóla í Sandgerði í gær og ekki vitað um ferðir hennar eftir það.

Kristín Júlíana er 172 sentímetrar á hæð með sítt rautt hár.  Hún var klædd í svarta úlpu með skinnkraga, svörtum leggings, svörtum skóm og með hello kitty tösku. Þeir sem verða varir við Kristínu Júlíönu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299 eða 444-2200.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×