Innlent

Opið í Hlíðarfjalli, lokað í Bláfjöllum

Atli Ísleifsson skrifar
Lokað er í Bláfjöllum í dag.
Lokað er í Bláfjöllum í dag. Vísir/Vilhelm
Opið verður í Hlíðarfjalli á Akureyri frá klukkan 12 til 16 í dag. Í tilkynningu segir að klukkan 11 sé fimm stiga frost, heiðskírt og hægur vindur.

Lokað verður í Bláfjöllum í dag. „Veðrið hér er að versna jafnt og þétt og á að verða verst á milli 12-16. En hér hefur hlaðist niður snjó og erum við búnir að nota nóttina í að ýta úr girðingum og troða svæðið til að búa í haginn fyrir betri tíð. Við verðum að vona það besta og setjum inn nýjar upplýsingar í fyrramálið,“ segir á Facebook-síðu skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli.

01. janúar 2016 kl. 09:45Gleðilegt nýtt árÞað verður lokað í Bláfjöllum í dag. Veðrið hér er að versna jafnt og þétt...

Posted by Skíðasvæðin - Bláfjöll & Skálafell on Friday, 1 January 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×