Leggja til að Einar K. Guðfinnsson verði stjórnarformaður Landssambands fiskeldisstöðva Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 17. nóvember 2016 13:32 Einar K. Guðfinnsson var forseti Alþingis á nýliðnu kjörtímabili. vísir/Gva
Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva (LF) samþykkti samhljóða á fundi í gær að leggja til við aukaaðalfund sambandsins að Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrum alþingismaður, verði kjörinn í stjórn sambandsins og taki við formennsku i stjórn þess. Aukaaðalfundur LF verður haldinn 24. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni. Einar K. Guðfinsson lét af þingmennsku við alþingiskosningarnar í síðasta mánuði eftir óslitna þingsetu frá árinu 1991 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var sjávarútvegsráðherra á árunum 2005-2007 og ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála 2007-2009. Í máli Einars á stjórnarfundi LF í gær kom fram að honum þætti þa ð spennandi að fá tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun í sjávarútvegi. „Ég hef ávallt litið á mig sem erindreka fjölþættra atvinnutækifæra í landsbyggðunum og sem stjórnarformaður LF fæ ég kærkomið tækifæri til þess að halda þeirri vegferð áfram. Ég er sannfærður um að hægt sé að vinna að uppbyggingu fiskeldis í sátt við umhverfi og lífríki náttúrunnar og hef skynjað mikinn metnað hjá fiskeldisfólki á því sviði. Fiskeldi á Íslandi er á ákveðnum tímamótum. Þegar hafa verið lagðir miklir fjármunir í uppbyggingu þess með góðum árangri. Framundan er frekari uppbygging til hagsbóta fyrir þjóðarbúið allt. Það er áhugavert að þessi uppbygging fer að lang mestu leyti fram á landsbyggðinni og þá ekki hvað síst í byggðarlögum sem hafa háð erfiða varnarbaráttu undanfarin ár,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Í tilkynningunni segir að Einar K. telji einnig nauðsynlegt að skapa vel menntuðu fólki aukin atvinnutækifæri og búsetuskilyrði á landsbyggðinni. „Það er svo ekki síður brýnt að eiga náið og gott samstarf við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir um þróun greinarinnar og stuðla að góðri samvinnu við landeigendur og veiðiréttarhafa um vernd og viðgang villtra laxastofna. Vonandi verður unnt að skapa vettvang þar sem allir hagsmunaaðilar sjá sér hag í að snúa bökum saman og standa þannig sem best að uppbyggingu fiskeldisins. Að því vilja fiskeldismenn vinna og þess vegna er það í senn sómi og tilhlökkunarefni fyrir mig að slást í þann hóp.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira