Íslensku línumennirnir í stuði í Árósum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2016 19:05 Róbert skoraði átta mörk í sínum fyrsta leik fyrir AGF síðan 2005. vísir/epa
Róbert Gunnarsson skoraði átta mörk í sínum fyrsta leik fyrir AGF í 11 ár. Þau dugðu þó skammt því liðið steinlá, 23-40, fyrir Team Tvis Holstebro í 1. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Annar íslenskur línumaður, Vignir Svavarsson, átti frábæran leik fyrir Holstebro og skoraði sjö mörk. Egill Magnússon skoraði eitt mark. Eins og tölurnar gefa til kynna var fátt um varnir hjá AGF. Liðið hélt þó í við Holstebro framan af leik og þegar 20 mínútur voru liðnar munaði aðeins einu marki á liðunum, 11-12. Gestirnir unnu svo síðustu 10 mínútur fyrri hálfleiks 7-2 og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 13-19. Í seinni hálfleik dró enn í sundur með liðunum og þegar lokaflautið gall munaði 17 mörkum, 23-40, á þeim. Ómar Ingi Magnússon og Sigvaldi Guðjónsson skoruðu báðir þrjú mörk fyrir AGF. Íslendingarnir skoruðu því 14 af 23 mörkum liðsins í leiknum. Aron Kristjánsson stýrði Aalborg í fyrsta sinn í deildarleik í dag þegar liðið mætti SönderjyskE á útivelli. Aalborg hafði mikla yfirburði í leiknum og vann 13 marka sigur, 15-28. Arnór Atlason og Stefán Rafn Sigurmannsson spiluðu sinn fyrsta leik fyrir Aalborg í dag. Arnór skoraði tvö mörk en Stefán Rafn komst ekki á blað. Viggó Kristjánsson þreytti frumraun sína fyrir Randers þegar liðið tapaði með minnsta mun, 21-22, fyrir Bjerringro-Silkeborg á heimavelli. Viggó skoraði þrjú mörk, öll úr vítaköstum.
Handbolti Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira