Ríkið niðurgreiðir eingöngu allra ódýrustu hjálpartækin Nadine Guðrún Yaghi skrifar 18. júlí 2016 07:00 Fatlað fólk þarf oft að borga sjálft fyrir aukabúnað á hjólastóla. Nordicphotos/Getty „
Fatlaðir þurfa oft að kaupa sér hjálpartæki og ég hef sjálfur rekið mig á mjög hátt verð,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður Sjálfsbjargar, en hann segir ríkið einungis niðurgreiða ódýrustu lausn sem kostur er á þrátt fyrir að tækið sé ekki það hentugasta. Þá sé ekkert niðurgreitt sem tengist útivist eða hreyfingu. Hjálpartæki séu oft mjög kostnaðarsöm og viðhald þeirra einnig.Bergur Þorri Benjamínsson varaformaður Sjálfsbjargar.„Ég á til dæmis bíl og þarf að nota lyftu til að komast inn í hann. Hún er í kassa undir bílnum og ég fæ ekki niðurgreiðslu því ég vil ekki hafa lyftuna inni í bílnum sem er ódýrara,“ segir Bergur sem greiðir fyrir lyftuna úr eigin vasa. Hann útskýrir að mikil óþægindi fylgi því að hafa lyftuna inni í bílnum, hún skrölti og taki mikið pláss. Þá segir hann varahluti í hjálpartækin oft mjög dýra og ekki niðurgreidda. „Þegar eitthvað er framleitt fyrir fatlaða er ótrúleg álagning en það er örugglega af því að það halda allir að ríkið niðurgreiði það,“ segir Aðalbjörg Guðgeirsdóttir, en hún er bundin við hjólastól og notar mótor við hjólastólinn sem auðveldar henni að fara sínar leiðir. Á dögunum eyðilögðust rafhlöðurnar í mótornum. Hún fékk þær upplýsingar frá verslun sem selur hjálpartæki, að nýjar rafhlöður kosti 200.000 krónur. „Mér fannst það rosalega mikið, sérstaklega því þetta er ekki niðurgreitt af ríkinu. Mótorinn sjálfur er ekki niðurgreiddur og hvað þá nýjar rafhlöður í hann,“ segir Aðalbjörg. Ástæðan fyrir því að hún fékk ekki mótorinn niðurgreiddan var sú að hún væri hvorki offitusjúklingur né með stoðkerfisvandamál. „Auðvitað er ég með stoðkerfisvandamál. Ég er í hjólastól,“ segir hún og tekur undir það með Bergi að aðeins allra ódýrasta lausnin sé niðurgreidd.Aðalbjörg Guðgeirsdóttir öryrki„Ég kannast við þetta. Fólk þarf oft að borga sjálft dýr hjálpartæki til að halda sér virkum í samfélaginu,“ segir Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, og bætir við að til dæmis þurfi vinnuveitandi að greiða fyrir hjálpartæki fatlaðs starfsmanns. Ríkið niðurgreiði þau ekki. „Það finnst okkur öfugsnúið þegar hið opinbera vill ýta undir atvinnuþátttöku fatlaðra,“ segir Halldór en hann er blindur og þarf punktaletursskjá í vinnu sem kostar allt að milljón.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira