Jóhann verður sérstakur erindreki stjórnvalda um málefni hafsins Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2016 14:32 Jóhann Sigurjónsson. Mynd/utanríkisráðuneytið
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, mun hefja störf í utanríkisráðuneytinu þann 1. apríl næstkomandi þar sem hann mun gegna stöðu sérstaks erindreka íslenskra stjórnvalda varðandi málefni hafsins. Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins segir að á undanförnum árum hafi alþjóðlegt samstarf og umræða um málefni hafsins aukist mjög, sem kalli á aukið samstarf og samhæfingu hvað varðar fyrirsvar Íslands um málefni hafsins á alþjóðavettvangi. „Meðal annars hafa orðið miklar breytingar á umhverfisaðstæðum í norðurhöfum, sem kalla á aukið samstarf ríkja um umhverfisvernd, siglingar, veiðar á deili- og flökkustofnum o.fl. viðfangsefni. Starf Jóhanns felst í að samræma verkefni varðandi málefni hafsins sem heyra undir fjögur ráðuneyti – atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, innanríkisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og utanríkisráðuneytið og leiða samráðsvettvang ráðuneytanna á þessu sviði. Jafnframt mun hann taka þátt í starfi á alþjóðavettvangi og sinna stefnumótun stjórnvalda í málefnum hafsins. Jóhann Sigurjónsson er menntaður sjávarlíffræðingur og hefur starfað sem sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun frá árinu 1981 og sem forstjóri stofnunarinnar frá 1998. Á árunum 1996 til 1998 fór Jóhann með auðlindamál í utanríkisráðuneytinu og var jafnframt aðalsamningamaður Íslands varðandi deilistofna á Norður Atlantshafi. Jóhann hefur víðtæka reynslu af málefnum hafsins og samningum um nýtingu fiskistofna á alþjóðavettvangi. Um þessar mundir er hann m.a. einn af varaforsetum Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og í formannsteymi nefndar sem starfar á vegum Norðurskautsráðsins og fjallar um framtíðarskipan samstarfs um hafið á Norðurslóðum, m.a. vernd og nýtingu náttúruauðlinda í Norður-Íshafi og aðliggjandi svæðum,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira