Björn Ingi vísar því á bug að hafa átt við bóksölulista Jakob Bjarnar skrifar 31. maí 2016 10:56 Kristján Freyr sakar Arndísi og Björn Inga um að hafa átt við bóksölulista árið 2002 og ljóst að honum hugnast ekki að Björn Ingi sé nú að eignast Rúbluna.
Samningaviðræður um kaup Björns Inga Hrafnssonar, eiganda VefPressunnar, á rekstri Bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg eru langt komnar. Þetta hafa þau Björn Ingi og Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, eigandi rekstursins, staðfest í samtali við blaðamann Vísis. Kaupin eru þó ekki frágengin en samningaviðræður eru á lokastigi. Þá vísar Björn Ingi þeim staðhæfingum Kristjáns Freys, fyrrum bóksala, á bug, þess efnis að þau tvö, Björn Ingi og Arndís Björg, hafi átt í bralli við að „laga“ til bóksölulista til ýta bók hans Barist fyrir frelsinu, sem kom út árið 2003. Vísir hefur heyrt tvisvar í Arndísi Björgu vegna málsins, en hún hefur að undanförnu verið stödd úti í Bandaríkjunum.Samningaviðræður langt komnar Til stendur að kaupa reksturinn og með í kaupunum fylgir leigusamningur sem er eftirsóknarverður, því leigan á húsnæðinu, gömlu Rúblunni við Laugaveginn, hefur ekki verið hár. Hins vegar er viðbúið að hann hækki verulega en samkvæmt heimildum Vísis rennur hann út eftir um það bil ár. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvaða rekstur Björn Ingi og félagar hans ætla í húsinu, en eins og áður sagði eru samningar ekki frágengnir. Nokkuð er um liðið síðan það spurðist að þetta stæði til og víst er að margir láta sig það skipta að bókabúð sé á þessum stað eftir sem áður. Skrif Kristjáns Freys, tónlistarmanns og fyrrum bóksala, á Facebooksíðu sína hafa vakið mikla athygli. En, þar vænir hann Björn Inga og Arndísi Björgu um brall sem snýst um að þau tvö hafi staðið fyrir bókhaldsbrellum með það fyrir augum að ýta bók Björns Inga upp á bóksölulista. Umrædd bók heitir Barist fyrir frelsinu og kom út 2003.Hitti Arndísi fyrst á þessu ári Útgefandi hennar er Vaka Helgafell, forleggjari á þeim tíma var Pétur Már Ólafsson. Þetta eru býsna alvarlegar ásakanir en Pétur Már segist ekki vilja kommentera á þær. „Bókin fékk prýðilegar viðtökur, seldist upp í þrjú þúsund eintökum fyrir jólin og var á ævisagnalistum á þeim tíma. Var mikill sómi af þessari útgáfu enda merkileg saga. Hún kom síðar út í Danmörku og ekki margar íslenskar ævisögur sem hafa komið út í þýðingum erlendis. Eða ég þekki ekki mörg dæmi þess. En, ætla ekki að tjá mig um þetta að öðru leyti,“ segir Pétur Már.Pétur Már útgefandi vill ekki tjá sig beint um málið en segir að bókin hafi selst upp á sínum tíma, sómi hafi verið af útgáfunni enda merkileg saga.Færsla Kristjáns Freys fylgir hér neðar en mikil viðbrögð eru við henni á Facebookvegg hans. Og þar undirstrikar Kristján Freyr orð sín og segir þau dagsönn. Björn Ingi vill ekki tjá sig beint um málið, ekki frekar en Pétur Már, en ljóst má vera að honum þykir þetta fráleitt, hann hafi aldrei komið nálægt neinum bóksölulistum og Arndísi hafi hann fyrst hitt á þessu ári.Færsla Kristjáns Freys Eins og áður sagði hafa skrif Kristjáns Freys vakið mikla athygli og eru þau nú á fleygiferð um netheima. Skrifin fara hér í heild sinni: „Árið 2002 vann ég í Máli og menningu. Arndís Björg nýtekin við verslunum MM. Ég sá um að taka saman metsölulista bóka fyrir allar verslanirnar, sem voru þá 5-6 talsins. Einn daginn þegar ég vann við listana tók ég eftir óvenju mikilli sölu á nýrri bók Björns Inga Hrafnssonar, Barist fyrir frelsinu. Sú bók seldist ekki neitt og því var þetta einkennilegt og þegar ég skoðaði nánar þá kom það í ljós að öll eintökin voru keypt í einni færslu. Það sem ég sá einnig var að sama magni af titlinum var skilað strax daginn eftir. Ég tók því þá geðþóttaákvörðun um að þessi sala stæðist ekki, enda var þetta inn og út sala. Eftir að ég sendi metsölulistana á alla fjölmiðla og bókabransann fór ég í mat en ekki leið á löngu þar til Arndís hafði hringt og óskað eftir því að ég kæmi strax aftur í búðina. Ég hefði nefnilega gert mistök, hafði gleymt einni bók. Ég var því skikkaður til að leiðrétta listana og segja þetta mín mistök. Þarna var listinn notaður til að hliðra sannleikanum. Ég hefði mátt láta þetta mér að kenningu verða en lét til leiðast og hóf störf hjá Arndísi um 10 árum síðar. Viðskiptin voru ekki mikið heiðarlegri þá en ég sé að hún hefur nú selt Bókabúð Máls og menningar, menningarsetur sem hún fékk upp í hendurnar án þess að borga neitt, og fengið böns af monní frá engum öðrum en Birni Inga Hrafnssyni. Hvort bragarbót verði gert á heiðarlegum viðskiptum þori ég ekki að segja. Ég hef haft hlýjar tilfinningar til BMM og hússins við Laugaveg 18 allt frá því ég byrjaði þar haustið 2000 en þær tilfinningar eru alveg við það að fjara út.“
Mest lesið Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Innlent Mjög alvarlegt tilfelli Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Innlent Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ Innlent Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Innlent Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn Innlent Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Innlent Skera niður til að mæta launahækkunum Innlent Fleiri fréttir Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Alvarlega slasaður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Börnin fari út en liggi undir trampólíninu í símanum Ráðist með hníf að ungmenni í Hafnarfirði Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ EES-ríkin þrjú efla samstarf við ESB á sviði öryggismála Öskrandi og ber að ofan við grunnskóla Opni Ísraelar ekki fyrir mannúðaraðstoð „þá verða að vera þvinganir“ Neyðaraðstoð í gíslingu, óvænt ákvörðun og ærandi spenna Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni upp í Þórsmörk og sneri heill heim Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu Sjá meira