Óttast um vinkonur sínar í Sýrlandi Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 23. janúar 2016 14:00 Maya Moubarak er sýrlensk, fædd á Íslandi en hefur búið bæði í Damaskus og Reykjavík. Vísir/Anton
Maya Moubarak er fædd á Íslandi og hefur búið bæði í Damaskus og Reykjavík. Hún þekkir af eigin reynslu hvað er mikilvægt til að aðlagast samfélaginu og aðstoðar flóttafólk frá Sýrlandi. „Við komum aftur til Íslands þegar stríðið byrjaði. Við skildum allt sem við áttum eftir í Sýrlandi. Á leið okkar til Íslands sáum við fréttir af framvindunni. Við vorum á flugvellinum í London og sáum frétt um átökin í sjónvarpinu. Mamma brast í grát, við vorum öll í áfalli,“ segir Maya um flutning fjölskyldunnar til Íslands árið 2011. Maya er fædd í Reykjavík en er alin upp í tveimur löndum. Sýrlandi og Íslandi. Foreldrar hennar eru sýrlenskir. „Pabbi flutti fyrst til Íslands fyrir nærri því fjörutíu árum. Hann kynntist íslenskri konu í Þýskalandi sem kynnti hann fyrir íslensku samfélagi. Hann settist hér að og hóf rekstur verslunarinnar Þúsund og ein nótt. Hann eignaðist fjögur börn sem búa hér, í Bandaríkjunum og í Svíþjóð. Hann er orðinn áttatíu og tveggja ára og rekur í dag verslunina Hókus Pókus með syni sínum.“ Með annan fótinn í Sýrlandi Faðir Mayu ber íslenskt fornafn, Arnar. Hann skildi og kynntist móður Mayu, Hala, í Sýrlandi. „Hann flutti með henni hingað og við erum þrjú alsystkinin. Ég á tvo yngri bræður sem eru í grunnskóla og menntaskóla. Við erum auðvitað stór, öll fjölskyldan, þegar allir er taldir saman.Ég hef alltaf átt heima í tveimur löndum því við fluttum fram og til baka. Ég var til dæmis bæði í leikskóla hér og í Damaskus. Ég var í raun með annan fótinn í Sýrlandi og hinn á Íslandi mín uppvaxtarár.“Maya segir það eflaust hafa mótað sig að hafa átt tvö heimalönd. Frá því að stríðsátökin brutust út í Sýrlandi hefur fjölskyldan búið við ótta og sorg.„Það var gott fólk í Sýrlandi, og það er ákaflega fallegt þar. Ég vissi ekki hversu mikið ég elskaði Sýrland fyrr en stríðið byrjaði og ég komst ekki þangað aftur. Vinkonur mínar eru enn í Sýrlandi. Ég næ af og til sambandi við þær, þær eru ekki alltaf með internettengingu. Þær eru á flakki og eru búnar að hafa það erfitt. Bróðir góðrar vinkonu minnar var handtekinn, hann var alveg að fara að útskrifast sem lögfræðingur og þau vita ekki neitt um afdrif hans. Hann hvarf árið 2012,“ segir Maya.Margra ára áfall Hún lýsir veruleika Sýrlendinga sem búa á Íslandi fjarri heimahögunum. „Þetta er eins og samfellt risastórt áfall sem stendur yfir í mörg ár.Mér finnst svo óréttlátt hvað ég hef það gott á meðan vinkonur mínar og ættingjar í Sýrlandi búa við mikið óöryggi. Það fylgir því óraunveruleikatilfinning og það kemur fyrir að ég þarf að koma mér inn í þennan raunveruleika. Búandi hér er svo erfitt að ímynda sér þessar aðstæður þar. Samt er það þannig að hörmungarnar eru alltaf með mér. Sérstaklega þegar ég horfi á mömmu sem grætur alla daga. Aðrir geta kannski ímyndað sér hvernig ástand það er þegar gráturinn er orðinn að viðvarandi ástandi. Fjölskylda mömmu er öll föst í Sýrlandi. Skólinn minn sem ég gekk í er hruninn og heimili vinkonu minnar, það er allt vonlaust í Sýrlandi. Sýrland verður ekki lengur til.“Vildi hjálpa samlöndum Maya ákvað að nota reynslu sína til hjálpar öðrum. „Lifandi lífinu hér þá vissi ég ekki hvernig ég ætti að bera mig að. Mig hefur alltaf langað til að gera eitthvað í þessu en maður getur lítið gert. Ég vann fyrst hjá Alþjóðasetri og nú Jafnréttishúsi sem Amal Tamimi rekur. Ég mun koma til með að aðstoða börn flóttafólks í Smáraskóla við að aðlagast lífinu á Íslandi. Jafnréttishús er hluti af mjög metnaðarfullri áætlun á vegum Kópavogsbæjar. Ég er ánægð með að fá að vera hluti af henni og leggja mitt af mörkum.“ Reynsla fjölskyldu Mayu er misjöfn. „Pabba hefur gengið vel í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann hefur enda búið svo lengi á Íslandi og þekkir samfélagið. Mamma hefur hins vegar átt mjög erfitt hér, hún hefur ekki náð að aðlagast samfélaginu. Hún hefur ekki lært tungumálið og þekkir ekki mikið af fólki. Þetta hefur verið svolítið erfitt fyrir hana. Ef hún hefði náð tungumálinu þá gengi þetta betur. Hún er orðin svo gömul og finnst hún ekki geta lært lengur, sama hvað hana langar mikið til þess. Hennar leið til samskipta er helst Facebook og svo les hún Kóraninn heima, hún er einangruð.“Yndisleg stund Maya tók á móti flóttafólkinu á Keflavíkurflugvelli og gladdist ákaflega. „Það var yndisleg stund á Keflavíkurflugvelli að hitta fólk frá mínu eigin heimalandi. Auðvitað óska ég mér þess að vinkonur mínar og fjölskylda komi einn daginn líka. Ísland er að gera meira en nóg. Ég er meira að segja hálffeimin við það hversu mikla aðstoð Ísland býður fram á meðan margar arabaþjóðir bjóða fram hlutfallslega litla aðstoð.“
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Fleiri fréttir Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Kennarar beittir ofbeldi af nemanda á jólaskemmtun Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Sjá meira