Þyrlu hlekktist á á Hengilssvæðinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. maí 2016 20:26 Mikill viðbúnaður var vegna slyssins Vísir/MHH
Þyrlu hlekktist á norðaustan við Nesjavallavirkjun fyrr í kvöld. Fimm manns voru um borð í þyrlunni en búið er að flytja þá á Landspítalann í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru fimmenningarnir komnir á bráðamóttöku og eru þau þar í rannsóknum. Tveir verða undir eftirliti í nótt og þrír voru lagðir inn vegna beinbrota og annarra meiðsla. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan 19:45 í kvöld tilkynning í gegnum gervihnattatungl að neyðarboð hefði borist frá þyrlu sem stödd var á Hengilssvæðinu. Þá þegar voru tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út og var þyrla farin í loftið skömmu seinna. Stuttu eftir að neyðarboð hafði borist til Landhelgisgæslunnar náðu farþegar um borð í þyrlunni að hringja á Neyðarlínuna og gefa upp nákvæmari staðsetningu þyrlunnar og upplýsingar um ástand fólks um borð. Um 20:20 var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar búin að finna þyrluna og rétt um tíu mínútum síðar hafði hún náð að taka alla farþegana fimm um borð. Var þá björgunarsveitum og slökkviliði snúið til baka. Flaug þyrla Landhelgisgæslunnar með farþegana á sjúkrahús í Reykjavík. Lögregla og björgunarsveitir ásamt fulltrúum Rannsóknarnefndar samgönguslysa eru nú á slysstað en þyrlan er talin mikið skemmd. Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar verður þeim innan handar.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Sjá meira