Ræddu áframhaldandi samstarf um loftvarnareftirlit Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2016 18:07 Frá komu Deborah Lee James til landsins. Mynd/Bryndís Steina Friðgeirsdóttir
Deborah Lee James, ráðherra bandaríska flughersins, yfirgaf Ísland í dag eftir viðræður við íslensk stjórnvöld um áframhaldandi hlutverk Bandaríkjanna í loftvarnareftirliti NATO hér á landi. Hún heimsótti í dag loftrýmisgæsluna á flugvellinum í Keflavík og var einnig rætt um stuðning Íslands við starfsemi NATO. "Heimsókn mín var mjög dýrmæt. Bandaríski flugherinn tekur skuldbindingu sína varðandio loftvarnareftirlit mjög alvarlega og við erum mjög þakklát fyrir samstarfið á milli Íslands og hinna NATO þjóðanna. Við áttum okkur á landfræðilegu mikilvægi Íslands og hlökkum til áframhaldandi samstarfs okkar við að tryggja öryggi gagnvart sameiginlegum ógnum,“ segir Lee James í tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna. Ráðherra fundaði með Arnóri Sigurjónssyni, skrifstofustjóra öryggis- og varnarmála í utanríkisráðuneytinu, og segist hún fullviss um að NATO muni styðja fjárhagslega við rekstur loftrýmisgæslunnar á flugvellinum í Keflavík. Deborah Lee James tók við stöðu ráðherra bandaríska flughersins árið 2013. Hún er 23. ráðherra flughersins og ber ábyrgð á málefnum ráðuneytis flughersins, þar með talið skipulagi, þjálfun, útbúnaði og velferð yfir 660 þúsund starfandi hermanna, varða, varaliðs, óbreyttra flugmanna og fjölskyldna þeirra. Heidi H. Grant, annar vararáðherra flughersins í alþjóðamálum, fylgdi ráðherranum í heimsókninni til Íslands. Ferð Deborah Lee James til Íslands er hluti af svæðisheimsókn þeirra til að stuðla að öryggissamstarfi milli Bandaríkjanna og aðildarlanda NATO.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira