SÁÁ slæst við SÍ fyrir dómi Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. febrúar 2016 07:00 SÁÁ segir að áður en samið var við ríkið í desember 2012 hafi í áratugi verið rekið meðferð fyrir sjúkratryggða á án árekstra við stjórnsýslu og fjárveitingarvald. vísir/heiða
Fjárveitingar Alþingis vegna þjónustu göngudeildar SÁÁ hafa ekki skilað sér að mati samtakanna. SÁÁ hefur stefnt ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna meintra vanefnda Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) á samningi sem gerður var í desember 2012 um þjónustu göngudeildarinnar. „Fjárveitingar frá Alþingi til SÁÁ taka mið af þessum samningi sem ráðherra hefur staðfest en með honum var gert ráð fyrir 43 milljóna króna árlegri greiðslu til þeirrar þjónustu SÁÁ sem þar er kveðið á um,“ segir í umfjöllun SÁÁ. „Frá því samningurinn tók gildi hefur hlutur SÍ í rekstrarkostnaði hins vegar minnkað úr 43 milljónum króna árið fyrir gildistöku samningsins, í 27 milljónir króna árið 2013, í 17 milljónir króna árið 2014 og í núll krónur árið 2015.“ Fram kemur að á síðasta ári hafi rekstrarkostnaður göngudeildarinnar numið 76 milljónum króna. „Vegna deilunnar við Sjúkratryggingar Íslands greiðir SÁÁ niður með sjálfsaflafé sínu þann hluta af kostnaðinum sem greiða ætti með framlagi Sjúkratrygginga. SÁÁ axlar þær byrðar að svo stöddu en hins vegar er ljóst að samtökin munu ekki til lengdar geta staðið undir óbreyttum göngudeildarrekstri á eigin kostnað.“ Framtíð göngudeildarþjónustunnar er sögð ráðast af framgangi dómsmálsins. Til þess hafi verið höfðað eftir árangurslausar innheimtutilraunir. SÁÁ býst við að aðalmeðferð í málinu fari fram á næstu vikum, en næsta fyrirtaka í málinu er átjánda þessa mánaðar.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Sjá meira