Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB aðild Breta gæti farið fram í sumar Heimir Már Pétursson skrifar 2. febrúar 2016 19:02 Donald Tusk og David Cameron. Vísir/EPA
Forsætisráðherra Bretlands er vongóður um að samkomulag takist við Evrópusambandið fyrir lok þessa mánaðar um breytingar á aðildarsáttmála sambandsins. Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi veru Breta í sambandinu gæti farið fram strax í júní á þessu ári. Donald Tusk forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins birti í dag á Twitter síðu sinni tillögur sem snerta alla fjóra þættina í kröfum Breta um breytingar á aðildarsáttmála þeirra við sambandið, eftir að hafa fundað með David Cameron forsætisráðherra Bretlands undanfarna daga. Í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir að Bretar geti fellt niður greiðslur eins og atvinnuleysisbætur úr velferðarkerfinu til innflytjenda frá Evrópusambandinu næstu fjögur árin, að að því gefnu að áframhaldandi aðild verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi. Nú er sagt að hún geti jafnvel átt sér stað í júní en áður hafði verið miðað við að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram á næsta ári. „Það var svo margt af þessu sem mér var sagt að væri ekki hægt. Ég sagðist vilja kerfi rauðra spjalda svo þjóðþingin gætu stöðvað lagasetningu. Það var sagt að það fengist ekki. En það er þarna í skjalinu. Það var sagt að það fengist ekki í gegn að fólk þyrfti að bíða í fjögur ár bætur í Bretlandi. Það er þarna í skjalinu,“ sagði Cameron í dag. En hann hefur verið gagnrýndur af stjórnarandstöðunni í Bretlandi fyrir að fresta því til morguns að kynna tillögurnar fyrir þinginu. „Okkur hefur orðið vel ágengt en það er meiri vinna fram undan, það þarf að negla niður fleiri atriði. En við sögðumst þurfa að ná árangri á fjórum lykilsviðum. Þetta skjal sýnir mikinn árangur í þeim málum,“ segir David Cameron.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira