Framsóknarmenn brennimerktir meðal listamanna Jakob Bjarnar skrifar 1. febrúar 2016 13:40 Sigmundur Davíð stillir sér upp í myndatöku en hann mætti út á Leifsstöð fyrir nokkru til að taka á móti sýrlenskum flóttamönnum. Sigmundur kemur við sögu í heimildamyndaþáttum Árna Gunnarssonar. visir/anton brink
Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er ómyrkur í máli á Facebooksíðu sinni, en hann tjáir sig um viðbrögð fulltrúa listmanna við fréttum þess efnis að forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið hafi styrkt Árna Gunnarsson, fyrrum varaþingmann flokksins, til að gera heimildaþáttaröð um flóttafólk. „Ríkisstjórnin hefur aukið stuðning við menningarmál að og sérstaklega við kvikmyndagerð. En miðað við viðhorfin sem formaður BÍL og formaður kvikmyndagerðarmanna hafa lýst til málsins hefði umsókn inn í það kerfi frá hinum brennimerkta kvikmyndargerðarmanni líklega ekki verið pappírsins virði,“ skrifar Haraldur ómyrkur í máli á Facebooksíðu sína. Hann telur sig greina óvild og þá óvild vill hann rekja til þess að téður kvikmyndagerðarmaður er Framsóknarmaður.Furðuleg viðhorf til styrksinsFram hefur komið að Árni hafi fengið þrjár milljónir í styrk frá þróunarsamvinnustofu utanríkisráðuneytisins og 3 milljónir frá ríkisstjórninni. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 11 milljónir en Árni ætlar að fjalla um þróunaraðstoð Íslands við flóttafólk úti og aðlögun þeirra flóttamanna sem hingað eru komnir frá Sýrlandi.Haraldur Einarsson telur Framsóknarmenn ekki njóta sannmælis meðal listamanna.Kolbrún Halldórsdóttir forseti BÍL og Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður Félags íslenskra kvikmyndagerðarmanna hafa báðar sett spurningarmerki við það hvernig þessi styrkur er til kominn, að Árni hafi ekki farið hefðbundnar leiðir við að fá fé til kvikmyndagerðarinnar og því hafi opinbert fé farið til hans án faglegrar umfjöllunar. Árni sótti ekki um styrk úr kvikmyndasjóði Kvikmyndamiðstöðvar, en hann segir í samtali við RÚV einfaldlega ekki hafa verið tími til þess. Haraldur segir furðulegt að fylgjast með fréttum af styrkveitingunni, ríkisstjórnin styrki stöku sinnum verkefni sem eiga það yfirleitt sammerkt að vera samfélagslega mikilvæg og málefni flóttamanna sé stærsta mál samtímans. Hann segir listamenn yfirleitt fagna opinberum framlögum en ekki að þessu sinni.Telja vinstri menn sig eiga styrkjakerfið?„Jú, þeim sem að öllu jöfnu hefði þótt þetta hið besta mál finnst það ómögulegt af því að í ljós kom að kvikmyndagerðarmaðurinn hafði fyrir mörgum árum verið varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn. Það skipti engu máli að hann hefði verið formaður flóttamannaráðs, væri reyndur kvikmyndagerðarmaður, hefði tekið frumkvæði í að gera mynd um þetta stóra mál og samið um sýningarrétt,“ segir Haraldur og heldur áfram: „Man einhver eftir því að styrkir vegna menningar- og samfélagsmála hafi verið gerðir tortryggilegir vegna þess að viðtakandinn hafði tengst Samfylkingu eða Vg. Auðvitað ekki!“ Haraldur telur alveg ljóst að vilji menn spá í pólitísk viðhorf þeirra sem oftast fá styrki sé óhætt að gera ráð fyrir því a „slagsíðan væri einhvers staðar annars staðar en hjá Framsókn (og ég er ekki að tala um Sjálfstæðisflokkinn). Munið þið eftir fréttaröð um hversu stór hluti af milljarða menningarstyrkjum skattgreiðenda hefur runnið frá vinstrimönnum til annarra vinstrimanna? Nei, ekki ég heldur, ekki beint. Formaður Bandalags íslenskra listamanna (fyrrum þingmaður og ráðherra Vg) taldi betra að enginn ætti tækifæri á styrkjum til nokkurs sem talist gæti til lista eftir öðrum leiðum en eftir því „faglega fyrirkomulagi“ sem nokkuð hefur verið til umræðu að undanförnu.“Furðulegt að fylgjast með fréttum af styrkveitingu til gerðar heimildamyndar um flóttamenn. Ríkisstjórnin styrkir stöku...Posted by Haraldur Einarsson on 1. febrúar 2016
Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Fleiri fréttir Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Sjá meira