Í dag getur fólk skoðað lyfseðla sína, bólusetningar og tekið afstöðu til líffæragjafar á vefsíðunni Veru. Aðgangur fæst með rafrænum skilríkjum. Þeir sem eru skráðir á heilsugæslustöð geta séð skráð ofnæmi, beðið um lyfjaendurnýjun og bókað tíma.
Guðrún Auður Harðardóttir, verkefnastjóri rafrænnar sjúkraskrár hjá Embætti landlæknis, segir næsta skref að fá yfirlit yfir heimsóknir í heilsugæslunni og innlagnir á sjúkrahúsum.
„Stefnan er að fólk geti séð alla læknaskýrsluna sína. En við tökum eitt skref í einu í þróuninni,“ segir Guðrún Auður.
Þjónustan sem nú þegar er í boði er hugsuð til þess að fólk þurfi ekki að bíða í símanum svo tímunum skipti eftir upplýsingum eða til að endurnýja lyfseðla. „Þetta auðveldar aðgengi að þjónustunni. Auðveld skref eins og að endurnýja lyfseðla verða mun fljótari.“
Fólk getur fengið aðgang fyrir börn sín að fimmtán ára aldri en annars fá aðstandendur ekki aðgang að sjúkraskrám. „Það er verið að skoða hvort hægt verði að veita aðstandendum aldraðra eða umboðsmönnum aðgang, til dæmis upp á lyfjagjöf. En það er bara í skoðun.“
Fólk fái fullan aðgang að eigin læknaskýrslum
Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar

Mest lesið


Bílstjóri ráðherra lagði ríkið
Innlent

Kalli Snæ biðst afsökunar
Innlent

Lýsa eftir Hlyni
Innlent


Hörður Svavarsson er látinn
Innlent




„Er allt komið í hund og kött?“
Innlent