Löwen úr leik eftir tap á heimavelli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. mars 2016 19:19 Löwen er úr leik. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen er úr leik í Meistaradeild Evrópu í handbolta eftir tveggja marka tap fyrir Zagreb, 29-31, á heimavelli í kvöld. Löwen vann fyrri leikinn í Króatíu, 23-24, og fór því með gott veganesti inn í leikinn í kvöld. Það dugði þó ekki til. Ljónin frá Mannheim byrjuðu leikinn vel og náðu í tvígang fimm marka forystu í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 15-13, Löwen í vil. Heimamenn voru áfram með yfirhöndina í seinni hálfleik og þegar 15 mínútur voru til leiksloka kom Uwe Gensheimer Löwen þremur mörkum yfir, 24-21, og munurinn því fjögur mörk samanlagt. En þá fór að halla undan fæti hjá Löwen á meðan Zagreb óx ásmegin. Króatarnir breyttu stöðunni úr 26-25 í 26-28 og unnu að lokum tveggja marka sigur, 29-31. Zagreb vann því einvígið, samanlagt 54-53. Hvorki Alexander Petersson né Stefán Rafn Sigurmannsson komu við sögu í kvöld en Andy Schmid var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk. Fyrr í dag tryggði Flensburg sér sæti í 8-liða úrslitum með eins marks sigri, 31-30, á Montpellier á heimavelli. Þýska liðið vann einvígið, samanlagt 59-57.
Handbolti Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Chelsea - Aston Villa | Endar sigurhrinan á Brúnni? Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Sjá meira