Laun til vígamanna ISIS lækka um helming Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2016 11:00 ISIS hefur þurft að þola röð ósigra að undanförnu sem hefur skilað sér í minnkandi „skatttekjum“. Vísir/AFP
Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa ákveðið að lækka laun til vígamanna sinna um helming. Fjárhagslegir erfiðleikar samtakanna að undanförnu hafa nú neytt leiðtoga ISIS til að bregðast við. Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights, sem eru með aðsetur í London, greina frá þessu, en samtökin búa yfir viðtæku neti heimildarmanna í Sýrlandi. Samtökin hafa nú birt bréf sem ISIS hefur sent öllum liðsmönnum sínum. „Vegna sérstakra aðstæðna sem Ríki íslams stendur nú frammi fyrir, hefur verið tekin ákvörðun um að lækka laun stríðsmanna [mujahideen] um helming.“ Enginn sé undanskilinn, en þær matarúthlutanir, sem eiga sér stað tvisvar í mánuði, mun halda áfram.Í frétt SVT kemur fram að margir vígamenn ISIS hafi talið laun sín hjá samtökunum sannkölluð draumalaun, þar sem þeir hafi fengið tvöfalt meira en hermenn stjórnarhers Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Erlendur vígamaður hjá samtökunum fékk áður átta hundruð Bandaríkjadali, rúmar 100 þúsund krónur, á mánuði, en launin munu nú lækka um helming í fjögur hundruð Bandaríkjadali. Aðrir þeir sem berjast á þeim landsvæðum í Sýrlandi og Írak sem ISIS ræður yfir fá nú tvö hundruð Bandaríkjadali á mánuði. ISIS hefur þurft að þola röð ósigra að undanförnu sem hefur skilað sér í minnkandi „skatttekjum“.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira