Döpur aflabrögð á Íslandsmiðum úr mikilvægum fiskistofnum Svavar Hávarðsson skrifar 21. janúar 2016 06:00 Makríllinn bætir upp lítinn afla úr áður sterkum karfa- og síldarstofnum. fréttablaðið/óskar
Afli íslenskra skipa í úthafskarfa hefur aldrei verið minni en á síðasta fiskveiðiári, eða síðan íslensk skip hófu beina sókn í tegundina á miðunum á Reykjaneshrygg. Á síðustu vertíð veiddu þau aðeins 2.128 tonn af úthafskarfa samanborið við 2.436 tonn árið áður sem þá var allra minnsti afli til þessa. Mikið samdráttartímabil í afla á úthafskarfa á Reykjaneshrygg kristallast í því að aflamark íslenskra skipa á nýliðnu ári var 3.244 tonn og voru íslensk skip því nokkuð frá því að veiða upp í aflamarkið. Aflamark komandi vertíðar er 2.614 tonn. Í frétt Fiskistofu kemur fram að á „velmektarárum úthafskarfaveiðanna á Reykjaneshrygg fór heildarafli íslensku skipanna oft yfir 40 þúsund tonn. Aflinn á síðustu tveimur vertíðum er því aðeins svipur hjá sjón.“ Íslendingar veiddu á síðasta ári 42.626 tonn af norsk-íslenskri síld. Þetta er minnsti afli íslenskra skipa úr þessum síldarstofni síðan 1994 eða í rúm tuttugu ár. Aflamark íslenskra skipa í norsk-íslenskri síld á árinu 2015 var rúmlega 45 þúsund tonn en verður litlu meira á komandi vertíð eða rétt tæplega 48 þúsund tonn. Betri fréttir eru af kolmunna- og makrílveiðum. Á síðasta ári veiddu íslensk skip 214.890 tonn af kolmunna. Þetta er mesti ársafli íslenskra skipa á tegundinni síðan 2007. Til að mynda var aflinn 5.882 tonn árið 2011 eða aðeins 2,7% af afla síðasta árs. Makrílafli íslenskra skipa á síðasta ári var 169.336 tonn en var árið áður 173.560 tonn. Þetta var samdráttur upp á 2,4% milli ára. Af þessum afla voru 148.280 tonn fengin úr íslenskri lögsögu eða 87,6% aflans.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira