Handbók um mataræði aldraðra á vef landlæknis Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 21. janúar 2016 10:59 Þörf fyrir vítamín, steinefni, prótein og trefjaefni minnkar ekki þótt fólk eldist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í handbók um mataræði aldraðra, sem lesa má á vef landlæknis, er bent á að í ráðleggingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) um fæði aldraðra sem og í Evrópuverkefninu Healthy ageing hafi verið lögð rík áhersla á að minnka salt og harða fitu í fæðu aldraðra og auka hlut grænmetis og ávaxta sem og hlut annarra trefjaríkra matvara. Öldruðum, sem eru við góða heilsu og hreyfa sig daglega, hæfir yfirleitt almennt fæði þar sem tekið er mið af ráðleggingum Lýðheilsustöðvar - manneldisráðs. Hætta á næringarskorti eykst hins vegar ef matarlyst minnkar, hvort heldur er vegna líkamlegra eða geðrænna sjúkdóma. Við slíkar aðstæður þarf að gera sérstakar og oft einstaklingsbundnar ráðstafanir varðandi fæðið. Orkuþörf minnkar með aldrinum, aðallega vegna vöðvarýrnunar og minni hreyfingar. Þörf fyrir vítamín, steinefni, prótein og trefjaefni minnkar hins vegar ekki að sama skapi. Því þurfa öll næringarefni að vera til staðar í minni fæðuskömmtum. Þar sem orkuþörfin minnkar með aldrinum er hætta á að fólk þyngist um of sé þess ekki gætt að minnka neyslu í samræmi við þörf. Ofþyngd og offita á efri árum eykur mjög líkur á sykursýki af gerð 2, of háum blóðþrýstingi og stoðkerfissjúkdómum auk annarra fylgikvilla og því er mikið í húfi að líkamsþyngd sé haldið í skefjum. Fituríkt fæði og kyrrsetur eru öðru fremur ávísun á fitusöfnun. Dagleg miðlungserfið hreyfing í 30 mínútur, t.d. gönguferðir eða leikfimi, ásamt hæfilegri fitu og skynsamlegu fæðuvali skipta meginmáli til að koma í veg fyrir offitu á efri árum. Á hinn bóginn minnkar oft matarlyst aldraðra, þeir léttast meira en góðu hófi gegnir og við það aukast líkur á mörgum sjúkdómum, að því er segir í handbókinni.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira