Tilbúin til að ganga lengra varðandi málefni lögreglunnar sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 13. janúar 2016 22:01 Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. Vísir/Anton
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir mikilvægt að efla traust á störf lögreglunnar í landinu. Hún segist tilbúin til að taka ákveðnari skref í þeim efnum og útilokar ekki aðkomu þingsins að ákveðnum málefnum lögreglunnar.Þetta kom fram í máli hennar í Kastljósi í kvöld aðspurð um þá ólgu sem ríkt hefur innan lögreglunnar að undanförnu og erindi Landssambands lögreglumanna til Umboðsmanns Alþingis í gær. Hún sagði að á því þyrfti að taka sem og þeim kvörtunum sem lögreglunni berist. „Við erum með í smíðum í ráðuneytinu frumvarp sem á að taka á kvörtunum til lögreglunnar. Þar er gert ráð fyrir ákveðinni stjórnsýslunefnd sem hefur ákveðið hlutverk fyrir höndum. En ég velti því fyrir mér hvort það sé ástæða til að hreinlega ganga lengra. Traustið á lögregluna í landinu, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur um land allt, er öllu æðra þegar kemur að virðingu gagnvart henni og þeim störfum sem hún sinnir. Þannig að mér finnst koma til greina að stíga ákveðnara skref í því hvort þingið sé meira í tengslum við það. Mér finnst koma til greina að skoða það,“ sagði Ólöf. „Það væri kannski gagnlegt á ákveðnum tímapunkti að geta átt trúnaðarsamtal við nefndir þingsins þegar kemur að tilteknum málum hjá lögreglunni. Mér finnst koma til greina að skoða það.“ Þá ræddi hún jafnframt þann óróleika og samskiptavanda sem hafi átt sér stað innan lögreglunnar að undanförnu. Því hafi verið fenginn vinnusálfræðingur til að taka út vinnustaðinn. Treysta þurfi embættinu til að taka á þeim málum sjálft, en að ráðuneytið muni fylgjast grannt með því hvort kvörtunum lögreglumanna sé tekið alvarlega.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Sjá meira