Viðskipti innlent

Hverfisgallerí og ÞOKA sameinast

Samúel Karl Ólason skrifar
Marteinn Tausen, Aldís Snorradóttir og Elísabet Alma Svendsen.
Marteinn Tausen, Aldís Snorradóttir og Elísabet Alma Svendsen.
Hverfisgallerí og Þoka gallerí hafa nú sameinast undir nafni Hverfisgallerís. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að Aldís Snorradóttir, stofnandi ÞOKU, og Elísabet Alma Svendsen munu ásamt Marteini Tausen, framkvæmdastjóra Hverfisgallerís, stýra sameinuðu galleríi.

„Hverfisgallerí var stofnað snemma árs 2013 og hefur unnið markvisst sem umboðsaðili fyrir listamenn gallerísins, auk þess að annast endursölu á listaverkum og veita ráðgjöf við kaup á myndlist. ÞOKA gallerí var stofnað vorið 2012 og hefur sýnt nýja myndlist eftir ungt og upprennandi listafólk,“ segir í tilkynningunni.

Með sameiningunni bætast nýir listamenn í hóp þeirra sem Hverfisgallerí hefur þegar starfað með. Þeirra á meðal eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Davíð Örn Halldórsson, Rakel McMahon og Sigga Björg Sigurðardóttir.

„Með sameiningunni leiða galleríin saman styrkleika sína og verður áfram unnið að því, innanlands sem og á erlendri grundu, að þjóna þörfum viðskiptavina og auka veg og vanda listamanna gallerísins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×