Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2026 08:27 Engilbert Hafsteinsson, nýr framkvæmdastjóri Nicetravel ásamt fráfarandi eigendum Stefáni Þór Gunnarssyni og Tryggva Þór Ágústssyni. Aðsend Hópur íslenskra fjárfesta hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Nicetravel ehf. Engilbert Hafsteinsson leiðir hóp fjárfestanna og tekur við starfi framkvæmdastjóra félagsins.
Í tilkynningu segir að Nicetravel sé eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. „Stærstu hluthafar verða Engilbert og Andri Gunnarsson, sem jafnframt verður stjórnarformaður félagsins. Meðal annarra fjárfesta eru Gestur Breiðfjörð Gestsson, Davíð Másson, Skúli Mogensen, bræðurnir Sveinn og Henrik Biering ásamt bræðrunum Birgi og Bjarna Brynjólfssonum. Fráfarandi eigendur, Stefán Þór Gunnarsson og Tryggvi Þór Ágústsson, munu starfa með nýjum eigendum á næstu mánuðum til að tryggja hnökralaus eigendaskipti og farsæla yfirfærslu rekstrarins. Nicetravel var stofnað árið 2012 með kaupum á einni rútu en hefur frá árinu 2016 starfað í núverandi mynd og vaxið hratt á undanförnum árum. Í dag rekur það 23 nýlegar 19 manna Mercedes-Benz rútur og býður upp á fjölbreytt úrval dagsferða og lengri hringferða um allt Ísland. Fyrirtækið sérhæfir sig í ferðalögum fyrir litla hópa þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu, gæði, öryggi og einstaka upplifun af íslenskri náttúru. Umsagnir viðskiptavina hafa verið afar jákvæðar en Nice Travel er með 4,9 af 5 mögulegum í meðaleinkunn á Tripadvisor, sem telst með því besta sem gerist í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningunni. Veltir tveimur milljörðum Félagið veltir í dag yfir tveimur milljörðum króna á ári og segir í tilkynningunni að það sé með góða rekstrarafkomu. Reksturinn byggi á öflugum mannauði og flotastýringu, háu hlutfalli eigin sölu og skýru viðskiptamódeli sem hefur skapað traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt. „Ég er afar spenntur að taka við rekstri Nicetravel og snúa aftur til ferðaþjónustunnar. Fyrirtækið er traust, vel rekið og byggir á afar sterkum grunni sem fyrri eigendur hafa skapað. Það býr yfir öflugum mannauði, framúrskarandi þjónustu og einstöku orðspori meðal erlendra ferðamanna. Við sjáum fjölmörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar og ætlum að byggja ofan á þann árangur sem þegar hefur náðst,“ er haft eftir Engilbert, nýjum framkvæmdastjóra Nicetravel. Um Engilbert segir að hann hafi víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja með sérstaka áherslu á sölu- og markaðsmál. „Hann var framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá WOW air á árunum 2013–2018 og framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og stafrænnar þróunar hjá Reykjavík Excursions á árunum 2018–2020. Hann sat jafnframt í Ferðaskrifstofunefnd SAF á árunum 2019–2020. Undanfarin ár hefur hann sinnt fjárfestingum og ráðgjöf fyrir fjölbreytt fyrirtæki og setið í stjórnum meðal annars Norðanfisks og Endor, auk þess að hafa verið stjórnarformaður Eðalfangs. Engilbert er með Executive MBA gráðu frá Háskóla Íslands.“ Ennfremur segir að ráðgjafar seljenda við söluna hafi verið fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Magna Lögmenn. Þá hafi ráðgjafar kaupenda verið fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og Nordik lögfræðiþjónusta.
Kaup og sala fyrirtækja Ferðaþjónusta Mest lesið Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Atvinnulíf Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Sjá meira