Loksins rétti tíminn til að koma með sólóplötu Gunnar Leó Pálsson skrifar 9. júlí 2015 10:00 Sigurgeir kemur fram á tónleikum ásamt hljómsveit í kvöld. mynd/finnbogi s. marinósson „
Mér fannst þetta bara vera rétti tíminn til að koma með plötu,“ segir gítarleikarinn Sigurgeir Sigmundsson en út er komin hans fyrsta sólóplata. Efni plötunnar er sótt í rokk, blús, djass og íslenska náttúru. Á plötunni eru þrettán leikin (instrumental) lög, þar af eru tólf eftir Sigurgeir. Eina tökulagið er Heyr himnasmiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson. „Við byrjuðum að taka upp í desember og kláruðum í febrúar. Það er þarna eitt lag frá 1982 en margt var samið sérstaklega fyrir plötuna,“ segir Sigurgeir um plötugerðina. Platan var tekin upp í Stúdíói Paradís og um upptökur og hljóðblöndun sá Jóhann Ásmundsson. Á plötunni leikur úrval íslenskra hljómlistarmanna. Jóhann Ásmundsson sér um allan bassaleik, húðirnar berja þeir Einar V. Scheving, Sigfús Óttarsson og Erik Qvik. Eyþór Gunnarsson, Kjartan Valdemarsson, Óskar Einarsson, Þórir Baldursson og Þórir Úlfarsson leika á hljómborð. Hljómsveitin Start leikur í tveimur aukalögum sem eru annars vegar Paradís, sem samið var í minningu Péturs W. Kristjánssonar söngvara, og Ekkert mál, sem var titillag samnefndrar heimildarmyndar um Jón Pál Sigmarsson, sterkasta mann heims, en hefur ekki komið út á hljómplötu áður. Sigurgeir hefur um langa hríð verið einn virkasti rokkgítarleikari landsins og leikið meðal annars með Bubba Morthens, Gildrunni, Starti, Tyrkja-Guddu, Skonrokki, Klaufunum, Gullfossi, Björgvini Halldórssyni, Drýsli og Eiríki Haukssyni. Sigurgeir og Draumabandið leika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld, Rauðku Siglufirði 10. júlí og 11. júlí í Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.30.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Sjá meira