Fjörulamb frá SS er tilvalið á grillið 23. apríl 2015 10:00 Helsta nýjungin frá SS er Fjörulambið sem kemur á markað á næstu dögum. "Við erum mjög spenntir fyrir þessari línu. Í kryddlöginn notum við söl sem gefur kjötinu örlítinn sjávarkeim en alls ekki yfirþyrmandi,“ lýsir Jón. Mynd/Stefán
Úrvalið af grillvörum er svipað í sumar og síðastliðin ár. Við bjóðum upp á 25 kjötvörur, sumar klassískar og aðrar nýjar, en allar úr íslensku kjöti,“ segir Jón Þorsteinsson vöruþróunarstjóri SS. Vinsælasta grillkjötið að sögn Jóns er SS kryddlegið sem hefur verið á markaði í fjölmörg ár og er sívinsælt meðal landans. „Í þeirri línu eru aðallega lambatvírifjur og lærissneiðar og ein tegund af svínakótelettum,“ segir hann og telur upp fleira sem er tilvalið á grillið. „Við bjóðum til dæmis upp á hálflæri en það er læri sem er sagað eftir endilöngu. Það er helmingi þynnra en venjulegt læri sem gerir eldunartímann styttri og því mjög gott að grilla það. Þá er kryddlegna folaldakjötið einnig mjög gott,“ segir Jón og bendir á að folaldakjötið sé að verða mun eftirsóttara en áður. „Fólk er að átta sig á hvað þetta er gott kjöt, enda er varla hægt að klúðra því, það er alltaf mjúkt og gott.“FjörulambFjörulamb án aukefna Helsta nýjungin frá SS er Fjörulambið sem kemur á markað á næstu dögum. „Við erum mjög spenntir fyrir þessari línu. Í kryddlöginn notum við söl sem gefa kjötinu örlítinn sjávarkeim en alls ekki yfirþyrmandi,“ lýsir Jón en fjórar tegundir verða í boði í línunni. Það eru læri, file, rib-eye og framhryggjarsneiðar. „Línan er einnig án allra aukefna en við höfum verið að fikra okkur áfram í þá átt hin síðari ár enda talsverður áhugi fyrir því hjá neytendum okkar.“Virk vöruþróun Fjörulambið er afrakstur öflugs vöruþróunarstarfs sem fram fer innan SS. „Við prófum gríðarlega margt sem aldrei kemur á markað,“ segir Jón glettinn en hugmyndirnar að nýjum vörum koma víða að. „Við fáum hugmyndir frá neytendum, starfsmönnum og öðru fólki sem við vinnum með. Hjá SS starfar vöruþróunarhópur sem samanstendur af fólki úr markaðsdeild, söludeild og framleiðsludeild og hann leggur línurnar um hvað við viljum þróa áfram og hvað er vænlegt til árangurs,“ segir Jón en stór hluti af starfinu snýst einnig um að elda og smakka. „Oftast fer það fram hér innanhúss en stundum sendum við vörur út í smakk. Við höfum til dæmis sent mat sem ætlaður er börnum í leikskóla til að fá umsögn um hvað þeim finnst. Þannig fáum við hugmynd um hvort við séum á réttri leið.“Krydduðu lærin frá SS eru öll hálfúrbeinuð.Hálfúrbeinuð læri þægileg SS byrjaði á því í fyrra að hálfúrbeina öll kryddlegin læri og framhald verður á því í ár. „Þá tökum við út tvö bein úr lærinu, rófubein og mjaðmabein, en skiljum legginn eftir. Með þessu móti er mjög auðvelt að skera lærið niður því það þarf ekki að sneiða fram hjá beinum. Að auki fær fólk mun meira af kjöti og minna af beinum í pakkanum,“ segir Jón en þessari nýjung hefur verið mjög vel tekið. „Fólk er mjög ánægt enda mun auðveldara að eiga við lærið í þessu formi.“Pylsuúrvalið frá SS hefur sjaldan verið betra.Pylsuúrval eykst Pylsumenningin á Íslandi hefur þróast talsvert síðustu ár og endurspeglast það í úrvalinu hjá SS. „Við erum með fjölmargar tegundir á grillið. Til dæmis ítalskar grillpylsur og katalónskar bratwurst-pylsur sem fengu gullverðlaun í síðustu fagkeppni kjötiðnaðarmanna. Við erum einnig með hefðbundnar bratwurst-pylsur, pólskar pylsur, danskar pylsur og svo þessar klassísku SS-pylsur,“ telur Jón upp. Hann segir að áhugi fólks á pylsum hafi aukist mjög og það sé mjög þakklátt fyrir aukið úrval af íslenskum útgáfum þeirra.
Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira