Snorri Steinn skoraði tvö mörk í stjörnuleiknum Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. desember 2015 12:00 Snorri Steinn hefur farið á kostum með Nimes. mynd/nimes
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, skoraði tvö mörk úr þremur skotum í stjörnuleik frönsku 1. deildarinnar í handbolta sem fram fór í gær. Snorri var í liði erlendra leikmanna deildarinnar sem tapaði fyrir úrvalsliði franskra leikmanna með fimm marka mun, 43-38. Ásgeir Örn Hallgrímsson var einnig í úrvalsliði erlendra leikmanna en hann komst ekki á blað. Skyttan örvhenta reyndi eitt skot á markið en það geigaði. Bæði Snorri og Ásgeir Örn spila með Nimes sem er í fimmta sæti frönsku deildarinnar með 16 stig eftir 14 leiki.#HSG2015#souvenirpic.twitter.com/v6Pgf2ihit — USAM Nîmes Gard (@USAMNIMESGARD) December 16, 2015 Snorri hefur farið á kostum í vetur og er lang markahæstur í Nimes-liðinu með 98 mörk auk þess sem hann stýrir leik liðsins. Næsti maður, Steven George, er með 55 mörk. Snorri Steinn er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar sem stendur en bara Nemanja Ilic (102), leikmaður Toulouse, og Mikkel Hansen (122), stórskytta PSG og góðvinur Snorra, hafa skorað fleiri. Næstur á eftir Snorra á markalista deildarinnar er spænski hornamaðurinn Valero Rivera, leikmaður Nantes, en hann er búinn að skora 93 mörk. Rivera var markahæstur erlendu leikmanna stjörnuleiksins í gær með sex mörk. Lub Abalo, hornamaður PSG og franska landsliðsins, var markahæstur allra í leiknum með átta mörk.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira