Jón Gnarr á villigötum Özur Lárusson skrifar 12. ágúst 2015 07:00 Góð lýsing hjá Jóni Gnarr í Fréttablaðinu, laugardaginn 8. ágúst sl. Þar lýsir hann stöðunni í almenningssamgöngum í Grafarvogi þar sem hann átti heima eitt sinn. Hann lýsir stopulum og óhentugum strætisvagnasamgöngum. Sönn lýsing hjá Jóni á raunveruleikanum þá, en það sem er athyglisvert er að lítið hefur breyst í þeim málum þrátt fyrir að Jón hefði sjálfur getað haft þar mikil áhrif. Raunar hefur lítið verið gert fyrir þá liðlega tuttugu þúsund manna byggð í Grafarvogi frá því Ingibjörg Sólrún sat í stól borgarstjóra. Hvað er þá til ráða fyrir barnmargar fjölskyldur sem búa í úthverfum? Jú, þau verða að kaupa sér „ónýtar bíldruslur“ af bílasölum og kaupa bensín af bensínsölum sem hata fólk sem hjólar ekki með hjálm! Eins og Jón orðar það þá er íbúum haldið í helgreipum einkabílsins. Fólk er fífl í huga Jóns, eða þau 75% borgarbúa sem nota bíl til að koma sér og sínum milli staða. Fullyrðingarnar eru hver annarri furðulegri hjá Jóni í þeirri aumu tilraun að gera lítið úr þeim sem kjósa og verða að nota einkabílinn. Jón segir erindin sem fólk sinnir með notkun einkabílsins vera „fáránleg“, að ferðast í bíl valdi „offitu“ sem og þeir séu „stórhættulegir“. Rétt er það hjá Jóni að bílar geta verið hættulegir en ég veit ekki um neinn samgöngumáta sem ekki getur verið hættulegur. Auðvitað verða samgöngur hættulegri eftir því sem gatnakerfið eyðist hægt og bítandi upp. Jón Gnarr hóf þá vegferð sem enn stendur að hætta að halda götum borgarinnar við, hvað þá að byggja nýjar. Þess vegna stöndum við uppi í dag með ónýtar götur og margfaldan kostnað við endurnýjun. Já, rétt hjá Jóni, það er dýrt að eiga ónýta bíldruslu og ekki verður það ódýrara þar sem viðhaldskostnaður hennar snareykst vegna skemmda sem hljótast af ónýtu gatnakerfi. Ég veit ekki hvar Jón fær þá hugmynd að bíla- og bensínsalar agnúist út í hjól sem ferðamáta, þvert á móti. Engan hef ég heyrt tala á þeim nótum, hvorki bíla- né bensínsala. Sjálfur hjóla ég mikið og hef af því mikla gleði og er mjög ánægður með þá þróun að lagðir séu betri og fjölbreyttari hjólastígar. Ég nota hins vegar hjálm því ég er með toppstykkið í lagi og vil halda því þannig! Það breytir því ekki að íbúar höfuðborgarsvæðisins eru og verða háðir því í flestum tilfellum að nota bílinn og þarf ekki að færa rök fyrir því, þau eru augljós. Jafnvel þó hugsanlega nokkrir pólitíkusar í 101 haldi öðru fram. Ég tel Jón á villigötum í umræðu sinni, hann reynir að búa til einhvers konar með og á móti stemmingu fyrir ákveðnum samgöngumáta. Því fjölbreyttari samgöngur því betra. Betra umhverfi fyrir hjólreiðamenn er líka betra umhverfi fyrir þá sem aka um í bíl. Að lokum vil ég benda Jóni Gnarr, dagskrárstjóra 365 miðla, að temja sér meiri víðsýni, fögnum fjölbreytileikanum gerum fólki kleift að ferðast á þann máta sem það kýs og verður. Einn samgöngumáti útilokar ekki annan, spennum beltin og öryggið toppinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Meira lýðræði fyrir Múlaþing Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar