Faglegri umfjöllun óskast! Helga Ingólfsdóttir skrifar 5. ágúst 2015 07:00 Tilefni skrifa minna hér í þetta blað nú um hásumar þegar sólin skín er að bregðast við skrifum Árna Guðmundsonar um æskulýðsmál í Hafnarfirði. Tilefni skrifa Árna virðist eingöngu vera að gagnrýna þá breytingu að um mitt ár var ákveðið að færa yfirstjórn félagsmiðstöðva og frístundaheimila frá fjölskyldusviði til fræðslusviðs í samræmi við tillögur rekstrarráðgjafa um einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu hjá Hafnarfjarðarbæ. Þessi skipulagsbreyting er þannig til komin að betur sé hægt að sinna þessum málaflokki og bæta þjónustu við börn og ungmenni í frítíma þeirra, það er kjarni málsins. Samhljómur er með þessari breytingu og tillögum starfshóps sem skipaður er fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn ásamt starfsmönnum, en starfshópurinn hóf störf í lok síðasta árs og skilaði af sér tillögum varðandi breytingar á rekstri frístundaheimila á vormánuðum sem kynntar voru á opnum fundi í Lækjarskóla. Tillögur starfshópsins, sem undirrituð hefur veitt formennsku, snúa fyrst og fremst að því að efla faglegt starf frístundaheimila og leita leiða til þess að samþætta og stytta vinnutíma barna og í því skyni hefur verið leitað eftir samstarfi við íþrótta- og frístundafélögin í bænum og þeim gefinn kostur á að reka frístundaheimili samkvæmt þjónustusamningi. Enn fremur var það tillaga starfshóps að gefa skólastjórnendum kost á að reka frístundaheimili og þannig hugsanlega ná að samþætta skólastarf og starfsemi frístundaheimila betur en verið hefur undanfarin ár, enda ljóst að töluverðir agnúar hafa verið á því fyrirkomulagi sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár. Árna virðist ekki hugnast að yfirstjórn frístundamála verði staðsett á fræðslusviði en færir engin rök fyrir þeirri skoðun sinni og setur í grein sinni gæsalappir á starfsheiti fagstjóra frístundamála, sem má túlka á þann hátt að hann gefi ekki mikið fyrir þann titil sem vekur furðu mína í ljósi reynslu hans af æskulýðsmálum almennt. Fagstjóri frístundaheimila mun hafa yfirumsjón með faglegu starfi frístundaheimila í samræmi við samþykktir bæjarins og enn fremur vinna að áframhaldandi þróun. Það má nefna að þetta er svipað fyrirkomulag og er hjá Reykjavíkurborg þar sem frístundaheimili eru staðsett á skóla- og frístundasviði. Það eru spennandi verkefni fram undan við að efla og bæta þjónustu frístundaheimila til samræmis við óskir foreldra um bætt innra starf og samþættingu við íþrótta- og tómstundastarf og það ætlum við að gera. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar