Fullt af litlum ljótum leyndarmálum magnús guðmundsson skrifar 3. maí 2015 09:00 Björn Þorláksson og sonur hans, Starkaður Björnsson, komu suður í vikunni til þess að fagna útgáfu bókarinnar. Fréttablaðið/Pjetur
Fyrr í vikunni kom út bókin Mannorðsmorðingjar? Faglegar og persónulegar pælingar um stöðu fjölmiðlunar á Íslandi eftir Björn Þorláksson, blaðamann til fjölda ára og ritstjóra Akureyrar vikublaðs. Björn segir að drifkrafturinn að því að skrifa þessa bók hafi í raun verið vilji til umbóta. „Staðan á fjölmiðlamarkaði í dag er að mínu mati mjög erfið. Nánast fordæmalaus og ég hef því miklar áhyggjur af stöðu gagnrýnnar blaðamennsku á Íslandi. Mér fannst mikilvægt að ræða þessi tabú sem liggja yfir fjölmiðlaheiminum í dag. Þessi hagsmunamál sem snúa að viðskiptalegum og pólitískum hagsmunum meðal annars. En þessi bók hefði aldrei verið skrifuð ef ég hefði ekki notið ómetanlegrar aðstoðar og hvatningar frá Þorbirni Broddasyni og Silju Aðalsteinsdóttur. Það vantaði bók þar sem blaðamaður stígur fram og segir frá öllum litlu ljótu leyndarmálunum. Gagnrýnin fjölmiðlun litast í of miklum mæli af hóphyggju, liðaskiptingu og of mikilli meðvirkni gagnvart þeim sem kemur það illa að frétt sé skrifuð. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Til þess að rjúfa þetta ástand, með vonina um umbætur að leiðarljósi, þá þarf ég að sjálfsögðu að leggja niður mín vopn og hleypa út öllum þeim beinagrindum sem er að finna í mínum skáp. Þannig að það má alveg segja að ég fórni mér í þessa bók.“ Björn segir að hann sé ekki lengur hræddur við afleiðingar þess að ástunda gagnrýna blaðamennsku óháð eigendum og pólitík. „Nei, þetta eru orðin mörg leyndarmál á löngum ferli frá miðlum á borð við 365, RÚV og DV. Vegna þess að innan ritstjórna þrífast leyndarmál. En stóra málið er að skilyrðin fyrir gagnrýnni blaðamennsku eru erfið og ég er líka hugsi yfir því hversu reynsluleysið er víða mikið. Engu að síður er ég sannfærður um að verðleikar muni fylgja einstaklingum. Að gagnrýninn og góður blaðamaður muni alltaf vera eftirsóknarverður þegar upp er staðið og fá vinnu. En án umræðu og breytinga erum við að steyta á skeri.“ Björn hefur á orði að í liðinni viku hafi til að mynda verið ágætis dæmi um mikilvægi sjálfstæðis í blaðamennsku þegar Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður á Fréttablaðinu setti fram gagnrýni á Jón Ásgeir Jóhannesson, eiganda 365, fyrir grein sem hann birti í blaðinu síðastliðinn mánudag. „Kolbeinn er hetja vikunnar. Það hafa fleiri en hann tekið sénsinn í gegnum tíðina en með ýmsum afleiðingum. Blaðamannastéttin og almenningur verða að vera sterkari en svo að eigendur eða aðrir komi sínu að. Það er nefnilega dálítið almennings að reyna að þroska sitt læsi. Lesa í það hvenær blaðamenn eru að vinna með almenningshagsmuni í huga og þarna liggur ábyrgð. Þess vegna er bókin hugsuð sem samtal á milli blaðamanns og hins eignalausa aðila, þ.e. almennings. Reyndar er ég ekki viss um hvort er mikilvægara fyrir almenning, að fordæma slæma blaðamennsku eða vinna með því sem vel er gert.“
Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira