Hugmyndin fæddist í gufubaði Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 29. apríl 2015 10:45 Hafdís segir viðbrögðin við geisladisknum hafa komið sér skemmtilega á óvart. Vísir/Ernir „
Ég bjó í Danmörku og þá var ég með mikla heimþrá. Svo flutti ég til Íslands og var stödd í gufubaði þar sem var verið að spila regnskógarhljóð, Amasonfugla og eitthvað. Þá fór ég að hugsa hvað það væri æðislegt ef það væru íslensk hljóð,“ segir tónlistarkonan Hafdís Bjarnardóttir sem gaf nýverið út geisladiskinn Íslandshljóð. Hafdís ferðaðist um Ísland og tók upp ýmiss konar náttúruhljóð. „Ég tók mest upp á nóttunni til þess að losna við hljóð af mannavöldum,“ en á disknum má meðal annars hlýða á fugla, hveri og fossa. Diskurinn hefur vakið athygli út fyrir landsteinana og mun Hafdís flytja fyrirlestur um verkefnið á námskeiði um náttúruhljóðritun í sumar. „Chris Watson, sem er svona frægasti náttúruhljóðritari heims, ásamt Jez Riley French er alltaf með námskeið hér einu sinni á ári fyrir þá sem vilja hljóðrita umhverfishljóð og þeir báðu mig um að vera með fyrirlestur á námskeiðinu í sumar,“ segir hún hress en einnig hefur diskurinn verið spilaður í breska ríkisútvarpinu á BBC 3. Hafdís, sem leiddist nánast óvart út í þetta verkefni, útilokar ekki að hún muni jafnvel halda náttúruhljóðritununum áfram í sumar en hún segir viðbrögð frá Íslendingum búsettum erlendis hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Það var eitthvað sem ég var ekki búin að átta mig á, ég er búin að fá svolítið af pöntunum frá Íslendingum sem búa erlendis,“ segir hún að lokum glöð í bragði. En nánar má fráðast um geisladiskinn á heimasíðu Hafdísar. Í tilefni af útgáfu geisladisksins verður opið hús í Fræðasetrinu í Gróttu á Seltjarnarnesi klukkan 21.00.
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira