Börnin voru byrjuð að svara sögumanninum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2015 13:00 Hugrún Hanna Stefánsdóttir og Bryndís Guðjónsdóttir í hlutverkum Paminu og næturdrottningarinnar. „
Þetta verður mjög skemmtileg sýning, það er svo mikil gleði í henni,“ segir Anna Júlíana Sveinsdóttir söngkennari. Þar er hún að tala um Töfraflautuna eftir Mozart sem verður frumsýnd í Salnum síðdegis í dag, á vegum Tónlistarskóla Kópavogs, í íslenskri þýðingu. Flytjendur eru nemendur í skólanum. Töfraflautan snýst um egypska prinsinn Tamino sem er villtur í ókunnu landi og verður ástfanginn af Paminu, dóttur næturdrottningarinnar. Papageno þarf að leggja ýmislegt á sig og hreppir loks sína eigin Papagenu. Anna Júlíana segir um tilvalda fjölskylduskemmtun að ræða. „Þetta er ævintýri,“ segir hún. „Jón Pétur Friðriksson er í hlutverki hins gamansama Papagenos og milli söngatriða rekur hann söguþráðinn til að auðvelda börnum að átta sig á efninu. Hann Jón Pétur er svo skemmtilegur og leikrænn að á generalprufunni á sumardaginn fyrsta voru börnin farin að svara honum, þau lifðu sig svo inn í það sem hann var að segja.“Skotin?Tinna Jóhanna Magnusson og Jón Pétur Friðriksson leika Papagenu og Papageno.Næturdrottningin er í höndum Bryndísar Guðjónsdóttur og er æðisleg líka, að sögn Önnu Júlíönu. Bryndís var að ljúka námi við skólann hér og stefnir á nám erlendis í framhaldinu. Það er gott fyrir hana að hafa þetta hlutverk í farteskinu þangað,“ segir hún. Rík hefð er fyrir því að óperur séu settar á svið í Kópavogi á vegum tónlistarskóla bæjarins enda nýtur hann þess að hafa aðgang að Salnum. „Ég er búin að setja upp 25 óperur með nemendunum gegnum árin, sumar þeirra hafa aldrei verið settar upp í annan tíma á Íslandi en við settum upp Töfraflautuna líka fyrir tíu árum,“ segir Anna Júlíana. Frumsýningin er í dag klukkan 17 í Salnum og önnur sýning á morgun, sunnudag, klukkan 20. Aðgangur er ókeypis fyrir alla.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Sjá meira